156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[15:53]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Þar sem stuðningurinn virðist ekki vera tryggður í fjármálaáætlun til framtíðar, til næstu ára, þá vakna eðlilega spurningar um trúverðugleika þessa úrræðis og framhaldsins. Ef við í rauninni teljum að fjölmiðlar skipti sköpum fyrir lýðræðið, sem ég held að við séum nú öll á hér, af hverju sjáum við þá ekki skýrari stefnu og fjármögnun í fimm ára áætlun ríkisstjórnarinnar þar sem einmitt er verið að sýna á spilin um hvaða aðgerðir verður ráðist í? Ég veit að hér er auðvitað verið að ræða um sama kerfi og gilt hefur síðustu ár, með þeim breytingum þó að hámarksúthlutun takmarkast við 22% í stað 25% áður. En ef það á að ráðast í gagngerar breytingar, af hverju er ekki gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar? Og eins líka: Hefur hæstv. ráðherra eitthvað íhugað að hafa ekki bara sérpotta fyrir einkarekna fjölmiðla? Hefur hann hugsað sér að hafa sérpott fyrir einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni? (Forseti hringir.) Af því að nú þekkjum við það að fjölmiðlar (Forseti hringir.) hafa þurft að hætta starfsemi vegna skorts á fjármunum.