fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Hér erum við auðvitað komin í umræðu um kerfi sem að meginstefnu til var sett á vegna samkeppnisstöðu fjölmiðla í einkarekstri sem standast illa samkeppni við þann mikla ríkisstuðning sem ríkismiðillinn fær á ári hverju frá skattgreiðendum. Norðurlöndin hafa öll tekið sinn ríkismiðil af auglýsingamarkaði og þar er markaðshlutdeild ríkismiðilsins mun minni en hérlendis. Hæstv. ráðherra kemur hér með breytingar sem skjóta því verulega skökku við, sem ráðast á þá einkareknu fjölmiðla sem þó veita ríkisfjölmiðlinum eitthvert aðhald og standast samkeppni við ríkismiðillinn. Við sjáum hryggilegar fréttir af Stöð 2 í dag.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra um það sem mér finnst mikilvægt að liggi fyrir í þessari umræðu. Hver eru hans sjónarmið um næstu skref gagnvart Ríkisútvarpinu? Ætlar hæstv. ráðherra að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði og þarf hlutdeild Ríkisútvarpsins á markaðinum að minnka?