fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Þetta byrjaði nú reyndar ekki sem Covid-aðgerð. Hins vegar náði þetta stuðningi í Covid. Það var búið að hafna þessu frumvarpi tvisvar held ég fyrir það. Það breytir því ekki að þetta er nauðsynlegt. Já, auðvitað er ég að vinna og nota gögn sem fyrrum ráðherrar voru að vinna í ráðuneytinu. Þó það nú væri. Það var mjög margt gott sem bæði þáverandi hæstv. menningarráðherra og hæstv. háskólaráðherra gerðu og ég er algjörlega ófeiminn við að nota þau gögn og halda áfram. Hv. þingmaður talar um að með þessu frumvarpi skorti fyrirsjáanleika. Hér er um brúarsmíði að ræða. Hefði hv. þingmaður frekar viljað að þetta frumvarp næði til fimm ára og væri þetta varanlega fyrirkomulag sem við ætlum að byggja á eða eigum við ekki að reyna að finna leið sem er meiri sátt um, bæði hér innan dyra og hjá fjölmiðlunum sem eru undir í þessu máli?