fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar um að RÚV sé fíllinn í stofunni. Fíllinn er býsna falleg skepna og skiptir máli að það sé farið vel með hann líka. Það er hins vegar alveg rétt að það hafa ýmsar hugmyndir sprottið upp varðandi auglýsingadeild RÚV. Í þjónustusamningnum sem þáverandi hæstv. ráðherra gerði við stofnunina og lýkur 2027 er komið inn á það að skoða leiðir til að minnka umfangið. Ein af þeim leiðum sem koma þar fram er að búa til einhvers konar gátt þannig að þetta sé ekki mjög virk söludeild sem er að sækja auglýsingar heldur gefist mönnum kostur á að kaupa sér auglýsingar. Það kemur líka til greina að stytta auglýsingatímana og annað slíkt. Það kemur líka til greina að gera RÚV það að auglýsa aðra miðla — það væri mjög áhugavert — án endurgjalds.