fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Það er ástæða til að fagna framlögðu þingmáli hæstv. ráðherra vegna þess að það er full þörf á stuðningi ríkisins við fjölmiðla á Íslandi. Þetta er orðin allnokkur, mikil og ég vil segja hrikaleg saga þegar fjölmiðlasaga Íslendinga er skoðuð, allt frá því að Einar Benediktsson skáld kom á fót fyrsta fjölmiðlinum, Dagskrá, á þarsíðustu öld og til okkar tíma á nýrri öld.
Þeim sem hér stendur er auðvitað málið nokkuð skylt vegna þess að hann var síðasti ritstjóri Fréttablaðsins sem lagði upp laupana fyrir örfáum árum og eftir stendur eitt dagblað á Íslandi. Þegar sá sem hér stendur hóf blaðamennsku árið 1981, sem er tiltölulega nýskeð, röðuðu dagblöðin sér á svo til allan Síðumúlann og Morgunblaðið var sínum ágæta stað niðri í Aðalstræti. Á þeim árum sem liðin eru og sérstaklega á allra síðustu árum hefur snarfækkað í blaðamannastétt, hver fjölmiðillinn af öðrum hefur lagt upp laupana og ásýnd fjölmiðla á Íslandi er orðin hættulega léleg. Þess vegna þarf að bregðast við og þess vegna ber að halda áfram með stuðning af þessu tagi, rétt eins og við sem förum með fjárlagavaldið styðjum listamenn í þessu landi sem ella gætu ekki sinnt sinni list með jafn þróttmiklum hætti og þeir gera í dag. Það er hægt að bera þetta fyllilega saman, stuðning til fjölmiðla á Íslandi og stuðning til listafólks.
Í þessu frumvarpi er farið fram með þeim hætti að það er verið að jafna dreifinguna, jafna stuðninginn og lækka hámark en auka staðbundinn fréttaflutning. Eins og hæstv. ráðherra kom að er verið að koma í veg fyrir svokallaðar fréttaeyðimerkur víða um land. Hvað er í húfi í þeim efnum? Það er staðbundinn fréttaflutningur sem er gríðarlega mikilvægur fyrir byggðir í landinu, fyrir sjálfsmynd fólks hringinn í kringum landið sem getur speglað sig í umræðu um allt milli himins og jarðar í sínu heimahéraði. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt í þessu frumvarpi að koma betur til móts við þessa miðla einkum og sér í lagi, til þess að þeir geti haldið úti sinni starfsemi um ókomin ár. Og hvert er svar þessara ritstjóra og blaðamanna sem rækja störfin á litlu miðlunum hringinn í kringum landið? Jú, svarið er ósköp einfalt: Þetta gerir gæfumuninn, þetta heldur þeim á floti. Sá sem hér stendur er ekkert endilega æstur í að leggja ofurkapp á að styðja ríkustu fréttamiðla landsins. Þeir eru að vísu svo orðnir sárafáir að þeir eru teljandi á hálfri hönd, ef svo má segja, og fréttirnar frá því í dag sýna okkur að jafnvel sterkir miðlar eru að draga ríkulega saman, eins og Stöð 2 sem fór af stað með miklum látum á níunda áratug síðustu aldar og sá sem hér stendur tók þátt í því mikla ævintýri, en nú er skarð fyrir skildi þegar framleiðsla þess fyrirtækis á eigin efni hefur verið lögð niður og komið í hendur einkaaðila úti í bæ og við getum jafnvel horft fram á það að fréttir Stöðvar 2 í núverandi mynd leggist af sömuleiðis.
Breytingar hafa sótt að íslenskri fjölmiðlun í ríkum mæli og þá verðum við að hafa það í huga að það er sótt að íslenskri fjölmiðlun, ritstýrðri fjölmiðlun, víða að, ekki bara með tæknilegum breytingum sem við þekkjum úr símunum okkar heldur líka frá einum stærstu fyrirtækjum í heimi hér, Google og Facebook, og ég gæti nefnt önnur erlend fyrirtæki, sem sitja ekki við sama borð og íslenskir fjölmiðlar sem borga sína skatta og skyldur eins og vera ber hér samkvæmt reglugerðum og lögum. Þessir stóru aðilar sitja hjá og komast upp með það að leggja ekkert til samfélagsins þó að þeir séu notaðir í ríkum mæli hér á landi, ekki síst af ríkisstofnunum til að auglýsa sína starfsemi.
Það er annað sem við þurfum að hafa í huga í þessu efni. Það er staða Íslands í fjölmiðlarekstri. Hún er að verða afskaplega bágborin og það er umhugsunarefni hvernig íslensk fjölmiðlun hefur hrunið hvað fjölmiðlafrelsi varðar. Við erum í komin í 18. sæti yfir þau lönd þar sem fjölmiðlafrelsi er virt mest í heimi hér. Noregur, Danmörk og Svíþjóð skipa efstu sæti listans í þessari röð en Ísland, sem ber sig alltaf saman við þessi þrjú lönd, og raunar fleiri til á Norðurlöndunum, er komið í 18. sæti. Ástæðan er einkanlega sú, eins og kveðið er á um í 6. kafla greinargerðar með frumvarpinu, þar sem lagt er mat á áhrifin, að íslenskir fjölmiðlar eru einfaldlega orðnir það fátækir að þeir geta ekki rækt starf sitt. Ég get vitnað til þess sem stendur í frumvarpinu:
„Ætla má að áframhaldandi stuðningur hafi jákvæð áhrif á einkarekna fjölmiðla sé litið til þeirra landa sem fyrirmynd kerfisins er sótt til. Eins og áður hefur komið fram skipar Ísland 18. sæti lista alþjóðasamtakanna Blaðamenn án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum, en Noregur, Danmörk og Svíþjóð“ — virðulegur forseti, svo ég vitni áfram í þetta — „skipa efstu sæti listans, í þessari röð. Á meðal þess sem talið er hafa neikvæð áhrif á frelsi fjölmiðla hér á landi er smæð íslensks fjölmiðlamarkaðar og erfið rekstrarstaða einkarekinna fjölmiðla í alþjóðlegu fjölmiðlaumhverfi. Eins og komið hefur fram hefur stuðningurinn reynst fjölmiðlunum afar vel, þá sérstaklega minni miðlunum og í sumum tilfellum verið forsenda fyrir því að halda úti rekstri fjölmiðla.“
Þarna er eitt aðalatriðið komið fram. Við þurfum að styrkja íslenska fjölmiðla hringinn í kringum landið svo þeir geti rækt áfram starf sitt og starfað í fjölmiðlafrelsi vegna þess að það er sótt að þeim mjög víða að.
Þá vil ég koma inn á atriði sem varðar falsfréttir. Einn sterkasti fjölmiðill okkar heimshluta og þó víðar væri leitað, BBC á Bretlandseyjum, og er auðvitað rekinn víðar um heim, hefur haldið úti heilli deild á undanförnum árum sem gerir ekkert annað alla daga en að leiðrétta falsaðar fréttir. Nú er svo komið að einn sterkasti fjölmiðill í heimi þarf vegna aðstæðna að reka deild sem hrekur falsfréttaflutning í heiminum. Þannig er komið fyrir fjölmiðlum í heimi hér.
Þá er komið að spurningunni: Hvernig högum við fjölmiðlaumhverfi okkar á Íslandi? Sá sem hér stendur hefur verið hugsi um það um árabil og ekki endilega verið alltaf með sömu skoðun vegna þess að breytingarnar hafa verið það víðtækar á undanliðnum áratugum að það er varla hægt að halda úti sömu skoðun í 40, 50 ár. Auðvitað var slagur Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins harkalegur um langt árabil og tók á sig ýmsar myndir og sem starfsmaður Stöðvar 2 gladdist maður ekkert endilega árum saman yfir stuðningi ríkisvaldsins við Ríkisútvarpið og gagnrýndi hann með ærnum hætti. Vegna aðstæðna sem uppi eru núna hefur sá sem hér stendur skipt að einhverju leyti um skoðun. Erum við í þeirri stöðu akkúrat núna árið 2025, þegar við erum að tala um æ veikari fjölmiðla á Íslandi, að veikja þann sterka sem fyrir er? Er það eina vitræna sem við getum gert akkúrat að veikja sterkasta fjölmiðillinn sem til er á Íslandi til að koma til móts við aðstæður? Ég segi nei.
Auðvitað má ýmsu breyta. Það hefur verið talað um auglýsingadeild Ríkisútvarpsins sem mjög herskáa deild, ef ekki herskáustu auglýsingadeild sem rekin er á Íslandi. Ef til vill á að snúa starfsemi hennar við þannig að hún verði frekar viðtakandi auglýsinga heldur en sækjandi þeirra. Það er miklu betri bragur á því en að starfsmenn auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins, með fullri virðingu fyrir þeim, fari eins og skæruliðar hringinn í kringum landið og safni öllum auglýsingum sem mögulega eru til staðar svo litlu miðlarnir, héraðsfréttablöðin, sitji eftir sveltandi. Þetta þarf að skoða og þessu má breyta. Það er hægur vandi.
En eigum við, og það er stóra spurningin, í ljósi aðstæðna einmitt að drepa niður frumkvæði Ríkissjónvarpsins og Ríkisútvarpsins? Eigum við að drepa niður þær deildir sem framleiða þar í miklum mæli eitthvert besta efni sem til er á Íslandi hvað varðar útvarp og sjónvarp? Ég segi nei. Við erum einfaldlega komin þangað að við getum ekki dregið úr mætti kannski eina sterka fjölmiðilsins sem eftir er á Íslandi. Ég held að það sé einfaldlega ekki hlutverk okkar að draga úr fjölmiðlun á Íslandi með þeim hætti. Þess vegna erum við einfaldlega komin á þann stað á Íslandi að við þurfum að verja síðasta vígið. Við erum komin þangað, við erum að verja síðasta vígið. Það er afskaplega mikilvægt í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er.
Gleymum því heldur ekki, svo talað sé tæpitungulaust, að helsti keppinautur Ríkisútvarpsins hvað afl varðar er eina dagblaðið sem eftir er. Hvert er hlutverk þess? Sá sem hér stendur tók eftirminnilegt viðtal við fyrrverandi stjórnarformann Árvakurs, þann ágæta mann, og vin minn, Óskar Magnússon. Hann sagði umbúðalaust í því viðtali á Hringbraut, sem er náttúrlega enn einn fjölmiðillinn sem fallinn er, að hlutverk Morgunblaðsins í ljósi nýrra eigenda á þeim tíma hefði verið að verja kvótakerfið, verja útgerðina og koma í veg fyrir að Ísland gengi í ESB. Það var bara augljóst markmið þess ágæta miðils að koma í veg fyrir Evrópusambandsaðild, halda uppi vörnum fyrir útgerðina og sjá til þess að ákveðnir aðilar héldu sínum kvóta. Þetta er auðvitað ekki heilbrigðasta fjölmiðlun sem til er í heimi hér. Hún tekur afstöðu með einu afli á móti öðrum, þannig að hafandi það líka í huga þá er það ekki forgangsmál þessarar ríkisstjórnar og þingheims að veikja sterkasta miðilinn sem þó enn þá er eftir.
En almennt séð vil ég fagna þessu frumvarpi. Það er kallað eftir því úr blaðamannastétt. Það er kallað eftir því frá rekstraraðilum þeirra miðla sem enn eru eftir og ég held að ég geti fullyrt, frú forseti, að ef þessi stuðningur gengur ekki eftir munu líklega allir héraðsfréttamiðlar á landinu leggja upp laupana, til viðbótar við þá sem hafa sagt skilið við samtíma okkar og sögu.