fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir þetta innlegg. Ég fagna frumvarpinu eins og það blasir við. Í rauninni er verið að fara hér í eins konar jafnari dreifingu stuðnings og lækka hámarkið og auka staðbundinn fréttaflutning eins og ég gat um í ræðu minni. Ég held að hér sé verið að fara rétta leið, að hlúa betur að þeim litlu og eyða kannski sem nemur minna magni fjármagns til þeirra stærstu. Það þarf að vera eitthvert ákveðið jafnvægi í þessu. Ég held að við séum komin á þann stað í fjölmiðlum, eins og ég gat um áðan, að veikja ekki endilega þann stærsta en styrkja sérstaklega þá smæstu. Við sjáum bara hvernig byggðir landsins spegla sig í sínum fjölmiðlum og hversu mikilvægt er að þeir fái að halda starfsemi sinni áfram. Ég held að þetta frumvarp hæstv. ráðherra komi vel til móts við þann rekstur og það sé afskaplega mikilvægt. Útfærslur í þessu frumvarpi taka auðvitað breytingum eftir því sem tímar líða fram. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við bindum þetta ekki til langs tíma. Við verðum að taka tillit til þeirra tíma sem við lifum hverju sinni þegar kemur að þessu málefni sem öðrum.