fjölmiðlar.
Hæstv. forseti. Gott að ég get útskýrt mitt mál í pontu Alþingis. Ég vil bara ítreka að það er hollt og gott að eiga þetta samtal og auðvitað, eðli málsins samkvæmt, eru hér þingmenn sem hafa mismunandi skoðanir á Ríkisútvarpinu, starfsemi þess og umfangi og hvernig eigi að styðja þá miðla sem eru einkareknir úti í feltinu og allt í kringum landið. En lykilatriðið er að hér erum við að halda áfram þessum stuðningi. Ég held við séum bara einfaldlega komin á þann stað í fjölmiðlarekstri á Íslandi að án stuðnings munu fleiri fjölmiðlar deyja drottni sínum og þetta frumvarp er að reyna að koma í veg fyrir það. Ég held að það sé samstaða um það í þinginu. Ég trúi ekki öðru.