156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[16:48]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi stilliskrúfuna þá minni ég aftur á það sem ég kom inn á í ræðunni að þetta hlutfall var hugsað miklu lægra þegar þáverandi ríkisstjórn og ríkisstjórnin þar á undan voru að hugsa þessa hluti. Síðan var þetta hækkað í Covid og hélst inni þannig. Það var talað um það í nefndinni sem skilaði áliti sem frumvarpið byggði á að þetta mætti verða allt að 25%. Það mátti lesa út úr því að það væri svona hámarkið. Ég held að við þurfum að vinna bæði með ívilnanir og styrki vegna þess að ég held að ívilnanir geti nýst stærri einingunum gríðarlega vel á meðan að litlu einingarnar eru svo smáar að ég held að styrkir þurfi að koma til. En ég heyri að hv. þingmaður er alveg tilbúinn til að eiga málefnalegt samtal um þetta.

Ég hjó hins vegar eftir einu í ræðu hv. þingmanns sem mig langaði að spyrja aðeins út í. Hún talaði mikið um frjálsa fjölmiðla og ég held að það geti verið beinlínis dálítið hættulegt að reyna að greina eitthvað á milli almannaþjónustufjölmiðla og einkarekinna fjölmiðla með því að vísa í frjálsa fjölmiðla. Og hvað er þá hitt? Eru það þá ófrjálsir fjölmiðlar? Það er auðvitað ekki tilfellið. Almannafjölmiðillinn okkar, Ríkisútvarpið, er frjáls fjölmiðill og öll lagaumgjörð er slík og það skiptir einmitt miklu máli að við tryggjum nægilegt fjármagn þannig að hann geti haft óháða ritstjórnarstefnu og sé ekki að lúta afskiptum yfirvalda frá tíma til tíma. Þannig að ég spyr hv. þingmann: Erum við ekki sammála um að einkareknir fjölmiðlar og almannafjölmiðlar geti báðir verið frjálsir fjölmiðlar og eigi að vera frjálsir fjölmiðlar, að það sé engin andstaða þarna á milli?