156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[17:13]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir svarið. Hann hitti nefnilega, eins og Norðlendingum er tamt, naglann á höfuðið með því að snúa við pokanum við. En ef við horfum á RÚV ohf. sem hrísgrjónapoka sem er búið að skera gat á neðan til þá þarf að snúa starfseminni við. Þannig að ég get alveg tekið undir þetta með hæstv. ráðherra, enda er þetta þjóðráð og ég hvet hann til að gera það til þess að ná betri tökum á því öllu.

Ég þakka aftur fyrir hrósið sem er nú ómaklegt. Menningarhlutverk Ríkisútvarpsins ohf. er ærið en ég er ekkert endilega á því að Ríkisútvarpið ohf. standi undir því. Það er líka talað um öryggishlutverk og þá vitna ég alltaf í það að ég var einu sinni á ferð með konunni minni á Fjallabaki syðra. Einhverra hluta vegna þá kveikti ég á útvarpinu, væntanlega hefur klukkan verið farin að nálgast fjögur og mig hefur langað í síðdegisfréttir. Fyrsta og eina útvarpsstöðin sem kom inn á Fjallabaki syðra þennan dag var útvarpsstöðin Lindin, sem var náttúrlega vel þegin og við fengum þarna nokkur sálmavers í eyrun á leiðinni yfir árnar. En ég held að hæstv. ráðherra, af því að hann fer nú kannski meira fljúgandi milli Reykjavíkur og Akureyrar heldur en akandi, en fari hann akandi þá eru a.m.k. fjórir blettir á leiðinni þar sem almannaútvarpið næst ekki þannig að ef eitthvað gerist á þeim tíma þá er ekki gott að reiða sig á það. Það er því að mörgu að gæta í þessu. En ég held að við þurfum að kippa Ríkisútvarpinu ohf. inn í nútíðina og gera okkur þannig kleift að standa að því að aðrir fjölmiðlar komist þangað líka.