fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur aftur fyrir andsvarið. Það er gaman að heyra hversu mikil samstaða ríkir um þetta frumvarp og þau markmið frumvarpsins að styrkja þessa minni héraðsmiðla í auknum mæli. Þeir skipta gríðarlega miklu máli og einnig sú forgangsröðun sem birtist í þessu frumvarpi, að potturinn sé í auknum mæli settur í þann farveg að styðja við þessa litlu og vaxandi héraðsmiðla frekar en að renna af of miklum mætti inn í stærstu miðlana með eðlilegu þaki, sem var líka hluti af upprunalegum markmiðum frumvarpsins þegar það var lagt fram, varðandi styrkjafyrirkomulag á sínum tíma.
Ég fagna því að samstaða sé um þetta mál. Ég tel að góð vinna geti farið fram í nefndinni gagnvart svona ákveðnum þáttum málsins sem hægt væri að skoða nánar og þá einmitt út frá þessum markmiðum héraðsmiðlanna. Varðandi það að fagna núverandi ráðherra og fyrri ríkisstjórn — ég held að það sem við höfum í höndunum hér sé eitt skref sem hefur virkað en samt ekki nægilega til að fjölmiðlaumhverfi á Íslandi sé að blómstra og dafna. Þetta hefur verið eitt skref sem birtist líka í tillögum frá þáverandi ráðherra, lengri listi af tillögum sem myndu styðja við fjölmiðlaumhverfi á Íslandi. Það hefur sýnt sig að þetta skref hefur skipt máli fyrir minni miðlana sérstaklega og það er jákvætt. Ég fagna því líka þeim skrefum sem fyrri ríkisstjórn tók ef það er það sem hv. þingmaður kallar eftir. En ég er líka ánægður með að ráðherra hafi boðað heildarendurskoðun sem hefur það yfirlýsta markmið að styðja áfram við einkarekna fjölmiðla, standa vörð um öflugt ríkisútvarp en á sama tíma að draga úr þessum sjálfkrafa vexti sem innbyggður er í þjónustusamning við RÚV sem síðasta ríkisstjórn gerði. Þetta er eini útgjaldaliðurinn í fjármálaáætlun ráðherra sem vex sjálfkrafa vegna þjónustusamnings. Það er mikilvægt að skoða þetta vel og tryggja að við séum með fjölbreytta fjölmiðlaflóru á Íslandi.