156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[17:32]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra Loga Einarssyni fyrir fína framsögu og yfirferð yfir þetta frumvarp. Við ræðum hér frumvarp sem lýtur að breytingum á lögum um fjölmiðla með það að markmiði að endurvekja tímabundið stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla. Hér hefur komið fram í ræðum hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að héraðsmiðlarnir, sem eru bornir út sem einhverjir bæklingar eða blöð, hvort sem það eru Nesfréttir eða Skessuhornið eða eitthvað slíkt, eru sérlega viðkunnanlegir gestir inni á heimilum held ég meira og minna allra sem fá þessi blöð. Þetta eru fréttir úr héraði, oft skemmtilegar fréttir sem myndu aldrei birtast annars staðar. Að það þurfi endilega styrki til að þessir miðlar haldi áfram; kannski, kannski ekki, en ég held að við í allsherjar- og menntamálanefnd þurfum að skoða þetta vel. Svo að vitnað sé í frægan mann er ekkert jafn varanlegt og tímabundin aðgerð stjórnvalda, þannig að það er nánast öruggt miðað við söguna og maður heyrir það á hv. þingmönnum, sérstaklega í stjórnarliðinu, að þeir eru ekki endilega vinir ríkissjóðs, þeir eru tilbúnir að ríkissjóður haldi áfram með styrki hingað og þangað.

Markmið frumvarpsins er skiljanlegt, að tryggja fjölbreytileika í fjölmiðlun og efla lýðræðislega umræðu, og lýðræðisleg umræða skiptir mjög miklu máli, og að styðja við ritstjórnir sem sinna mikilvægri samfélagslegri þjónustu. Þar sem við Íslendingar erum lýðræðissamfélag skiptir ofboðslega miklu máli að umræðan sé sönn, rétt, upplýst og lýðræðisleg. Vissulega gegna fjölmiðlar hlutverki í þessu tilliti en það er ákveðinn pottur brotinn, verulega brotinn. Það sem er að gerast smátt og smátt í samfélaginu er að sífellt færri fylgjast daglega með þessum fjölmiðlum sem styrkja á. Ef maður gluggar í það þá eru ekki til margar kannanir um þetta varðandi íslenska neytendur en á Norðurlöndunum, sem eru með svipaða innviði og tæknibyggingu og Ísland, eru 25–30% landsmanna nokk hætt að fylgjast vel með sínum fjölmiðlum, sem við sem eldri erum þekkjum sem fjölmiðla og það eru þá blöðin sem eru stærst og sjónvarpsstöðvar. Með tæknibreytingum hefur þetta farið ótrúlega mikið inn í hlaðvörp og neyslu á erlendum miðlum, samfélagsmiðlum.

Þetta er þróun sem ég er ekki sáttur við en hún er líklegast komin til að vera og þetta hlutfall á eftir að aukast og aukast. Hvort við getum spornað við þessu með því að dæla fé út í fjölmiðla efast ég hreinlega um en þá bankar í bakhöfuðið á mér líka að við verðum að gæta að íslenskunni og fjölmiðlar eru góðir til þess, þ.e. vandaðir fjölmiðlar. En ef þessari ríkisstjórn væri raunverulega annt um lýðræðið myndi hún ráðast að ákveðnum rótum ákveðins vanda því það er þannig að það skiptir engu máli hversu góðir fjölmiðlarnir eru, hversu vel þeir eru unnir, hversu góðar ritstjórnirnar eru, ef þú sem einstaklingur ert ekki með grunnfærni í lesskilningi þá muntu ekki geta metið þær fréttir, þær upplýsingar sem berast að þér. Ef það væri raunverulegur lýðræðisvilji hjá ríkisstjórninni — því að það ber ofboðslega lítið á menntamálum frá stjórnarflokkunum, það kemur lítið frá þeim hér. Það eru hér stjórnarandstæðingar sem ræða þetta trekk í trekk, hvort sem það er í störfum þingsins eða öðru, en stjórnarliðar ræða þetta ekki. Þetta er mál sem er í raun akút mál fyrir alla þjóðina en ég hef ekki heyrt minnst á þetta frá Viðreisn né Samfylkingunni og mér finnst það hreinlega mjög dapurlegt. Þetta er grunnurinn að því að við getum notað fjölmiðla, fengið upplýsingar, fréttir. Það er rétt að sífellt fleiri fjölmiðlar sem við notum erlendis frá, þar eru alls konar fréttir sem við þurfum dómgreind og lesskilning til að meta hvort séu réttar fréttir eða ekki. Við getum ekki haft við hliðina á okkur stanslaust einhvern sem fer yfir fréttirnar okkar en það er sífellt stærri hópur sem er þarna. Það þýðir að hagsmunaöfl eiga auðveldara með að koma sínum skoðunum á framfæri þegar staðan er þessi.

Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra Loga Einarsson, og ég veit að hann er metnaðarfullur, í að slá í klárinn varðandi menntamálin. Þó að þau séu ekki á könnu Samfylkingarinnar þá er allt í lagi að pæla aðeins í þessum málum þar.

En svo ég haldi nú áfram um þetta frumvarp og þá pólitík sem er í því þá hef ég áhyggjur af — og það breytir ekki hvort það eru fjölmiðlar eða aðrar stofnanir sem fá sjálfvirka innspýtingu á fjármagni, að ef þau haka í ákveðin box komi peningurinn sjálfkrafa. Við sjáum það víða, t.d. með hlaðvarpið Dr. Football sem er komið núna inn til Stöðvar 2, þeir eru búnir að taka það yfir og vegna þess frumkvæðis og þeirrar nýsköpunar sem það hlaðvarp stóð fyrir eru þeir komnir með það á dagskrá hjá sér í enska boltanum næsta vetur. Þetta held ég að yrði mun síður einhvers staðar þar sem þú ert með í raun áskrift að fjármagni ef þú bara hakar í réttu boxin og peningaflæðið heldur áfram óháð því innihaldi og þeim gæðum sem miðlarnir miðla. Þetta eru pælingar sem ég held að við getum, hvort sem við erum til vinstri eða hægri, tengt við, að neyðin kenni naktri konu að spinna. Ef við þurfum að hafa fyrir hlutunum og þurfum að bjarga okkur úr stöðunni þá erum við líklegri til að finna einhvers konar leiðir frekar en að bara treysta á að stóri bróðir komi til hjálpar. Með þessu er ég ekki að segja að ég vilji drepa íslenska fjölmiðla. Ég er bara að segja að sjálfsbjargarviðleitnin minnki ef við höfum alltaf eitthvað til þrautavara.

Svo að ég haldi hér áfram þá er breyting í þessu frumvarpi frá því sem var. Þó að upphaflega meiningin hafi verið, eins og hefur komið fram í máli hæstv. ráðherra, að hafa mörk á því hversu mikið er hægt að þiggja af þessum styrkveitingum þá er það samt þannig þótt við séum lítið land er nauðsynlegt fyrir Ríkissjónvarpið að hafa sterkt aðhald. Við sjáum það bara í fréttum núna að Sýn eða Stöð 2 er að segja upp töluvert af starfsmönnum. Sýn og Morgunblaðið eru svona stærstu aðilarnir sem veita RÚV einhvers konar aðhald og samkeppni, þetta eru aðilar sem hafa skilað tapi í mörg ár og eigendur þeirra hafa þurft að fjármagna þá með auknu eigin fé. Þetta frumvarp kemur til með að lækka styrkina til bara þessara tveggja stóru fyrirtækja. Þarna er verið að tala um stórfyrirtæki og í hugum margra eru stórfyrirtæki vond fyrirtæki vegna þess að þau eru með einhverjum hætti búin að sölsa eitthvað undir sig. En við verðum að hafa sterka aðila til þess að RÚV hafi aðhald, því að það eru langt frá því allir sammála um það að RÚV sé hlutlaus fjölmiðill. Ég held að í raun sé erfitt að vera hlutlaus fjölmiðill því að fjölmiðillinn er náttúrlega bara þeir fréttamenn sem vinna á fjölmiðlinum. En þessir tveir miðlar, Sýn og Morgunblaðið, eru einmitt þeir sem reka öflugustu ritstjórnirnar, veita fjölbreytta dagskrá, ná til stórs hluta þjóðarinnar og bera uppi stóran hluta af fréttaflutningi landsins. Þarna skýtur skökku við að þessir fjölmiðlar fái minna ef þetta frumvarp verður að lögum. Það er ákveðin tilhneiging hjá þeim sem aðhyllast ríkisreksturinn mikið að mála upp stóra aðila sem einhvers konar vonda aðila. Þetta sést líka varðandi sjávarútveginn og slíkt, að fyrirtækjum sem gengur vel og eru stór og öflug séu með einhverjum hætti, huglægum hætti þá, verri en önnur. Mér finnst svona skjóta skökku við að það skuli ekki vera hróflað við RÚV í kringum þetta en tveir stærstu samkeppnisaðilarnir fái skerðingu.

Það sem mér finnst vanta í þetta frumvarp eru skýr viðmið um gæði, að það komi eitthvað frá miðlunum sem sé þess virði af fólk noti miðlana. Það er hægt að haka í boxin án þess að gæðin séu mikil og það er náttúrlega ekki gott. Nú er ég ekki að leggja til að það sé einhver ríkisstofnun sem meti gæðin en þetta er bara erfitt þegar við erum komin með einkafyrirtæki sem þiggja styrki frá ríkinu. Svo er það þetta sem menn hafa áhyggjur af, þessi armslengd stjórnmálanna frá fjórða valdinu og frá öllu valdi, að stjórnvöld hafi ekki völd yfir þeim sem gagnrýna þau. Hér hafa fallið orð í fjölmiðlum þar sem þingmenn í stjórnarmeirihlutanum hafa verið með hótanir um það að draga úr styrkjum til ákveðinna fjölmiðla og svo, eins vont og það er fyrir hæstv. ráðherra, raungerist það í þessu frumvarpi. Ég veit að þetta er ekki vilji hæstv. ráðherra beint en þetta bara, hvernig á ég að orða það, kemur illa út. Hæstv. ráðherra hefur fordæmt þetta sjálfur og er það vel, þannig að það sé sagt.

Ég held og bara segi það hér að frjáls fjölmiðlun er ekki lúxus, hún er nauðsyn. Þetta er haft eftir Walter Lippmann sem er merkur maður. Ég myndi vilja hvetja okkur, ég er í allsherjar- og menntamálanefnd, til að fjalla ítarlega um það hvers vegna íslenskir fjölmiðlar hafa tapað svolítið fótunum. Það er augljóslega vegna þess að fjárstuðningur til þeirra í gegnum auglýsingar hefur minnkað dramatískt bara í kjölfar þeirra þjóðfélagsbreytinga sem hafa átt sér stað og ég held að það væri sterkt fyrir nefndina að ávarpa með einhverjum hætti aðkomu RÚV að auglýsingamarkaði. Það hefur komið fram í tali þingmanna bæði stjórnar og minni hluta, og þetta er eitthvað sem ég held að almennur samhljómur kunni að ríkja um, að það væri auðvitað best ef fjölmiðlar á Íslandi rækjust án ríkisaðkomu. Það er bara þannig, eins og kom fram í máli hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar, að menn slá eða bíta sjaldnast höndina sem fóðrar þá. Það er hættulegt að blanda saman stjórnmálum og því valdi eða því aðhaldi sem fjölmiðlar veita þeim og það hefur sýnt sig.

Ég hlakka bara til að ræða þetta mál í nefndinni og veit að ef við viljum kalla ráðherra fyrir til skrafs og ráðagerða er hann örugglega til í að koma.