156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[17:52]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það kom vel á vondan að hv. þingmaður nefndi umfjöllun fjölmiðla á Covid-tímabilinu. Það var svo sem ekki mikil samkeppni um vinkla í þeirri umfjöllun og fjölmiðlarnir kepptu hver við annan um að mála hlutina dekkri litum en nauðsyn kallaði eftir. En það voru ekki bara fjölmiðlarnir, það var líka fjölmiðlanefndin sérstaklega sem fór í einhverja einkennilega herferð gegn meintri upplýsingaóreiðu á internetinu og hjá hinum og þessum, gerði það þó með þeim hætti að ekki var tekið neitt á einhliða umfjöllun fjölmiðlanna heldur fór fjölmiðlanefnd þvert á móti í herferð sem síðan hefur reynst hafa verið algerlega röng. Allur málflutningur þeirrar nefndar, sem kom fram sem boðberi hins heilaga sannleika og gagnrýninnar umfjöllunar, var til háborinnar skammar, það sem kom frá fjölmiðlanefnd á þessum tíma. En ég vildi bara brýna hv. þingmann til að skoða þessi mál sérstaklega í samhengi, þ.e. þessar kröfur.

Ég er sammála honum með það að þegar menn komast á ríkisjötuna, þegar menn komast á spenann, þá þarf að hafa eitthvert eftirlit með því. Það er þess vegna sem við eigum ekki að setja, hvorki fyrirtæki né einstaklinga, á ríkisjötuna, á spenann. Við eigum ekki að gera það. Ég vil líka nota þetta tækifæri og spyrja hv. þingmann hvort hann muni leggja áherslu á það eða beita sér fyrir því í hv. nefnd að það verði skoðað sérstaklega hvort ekki megi draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins, sem er auðvitað rót þeirrar stöðu sem upp er komin á fjölmiðlamarkaði, hvort það sé ekki forsenda fyrir afgreiðslu þessa máls að það verði skoðað hvernig, og hvort það sé ekki eðlilegt, megi draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins.