fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu og taka undir ýmis sjónarmið sem þar komu fram. Ég er inni á því að draga niður í RÚV, taka RÚV út af auglýsingamarkaði. Ég er einnig inni á því að einkareknir fjölmiðlar séu reknir á viðskiptalegum forsendum. En ég vil minnast á eitt sem kom fram í ræðu hv. þingmanns: Hann ræddi hér um einhverja hótun þingmanns. Þá átti hann örugglega við orð mín þegar ég minntist einfaldlega á að ég teldi að það væri augljóst, af framgöngu Morgunblaðsins þegar komið væri að Flokki fólksins, að Morgunblaðið væri ekki að flytja fréttir heldur byggi eitthvað annað að baki. Þeir sem hafa greitt herkostnað Morgunblaðsins, það eru einmitt sérhagsmunaöflin. Og við sjáum það svo vel í þeirri umræðu sem fer fram núna um sjávarútvegsmálin, auðlindagjöldin og allt það. Það er ákveðin herferð í gangi þar sem verið er að tryggja þessa sérhagsmuni. Sú umræða sem þar fer fram undirstrikar það miklu frekar að við þurfum að skoða þessi fjölmiðlamál upp á nýtt. Ég segi það bara að ég er ekki sammála Sjálfstæðisflokknum í því að verja eigi hálfum milljarði króna af skattfé almennings í að styrkja einkarekna fjölmiðla sem eru jafnvel að þjóna einhverjum sérhagsmunum. Ég vil miklu frekar að það fé renni þá til öryrkja, þeirra sem eiga vart til hnífs og skeiðar. Ég er ósammála hv. þingmanni, formanni Sjálfstæðisflokksins, í því sem kom hér fram í umræðunni í dag, að hún sjái ofsjónum yfir þessum peningum. En síðan þegar farið er út í umræðu um fjölmiðla þá eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins að tipla á tánum í kringum það að Morgunblaðið fái bara alla summuna.