156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[17:58]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir sitt andsvar. Það birtist kannski ekki nein spurning í andsvarinu en við erum greinilega sammála um það, við Sjálfstæðismenn og hv. þm. Sigurjón Þórðarson, að það er ekki viskulegt að ríkisfé sé veitt með ótakmörkuðum hætti til einstaklinga og einkafélaga. Það væri bara fínt ef hv. þingmaður myndi beita sér fyrir þeim sjónarmiðum í ríkisstjórninni og ég skal vera fyrsti maður til að styðja hann í því.

En ég held að hv. þingmaður viti samt að það er afar óheppilegt fyrir ríkisstjórnina og hæstv. ráðherra Loga Einarsson að hv. þingmaður hafi látið þessi orð falla um Morgunblaðið — hv. þingmaður getur haft alls konar skoðanir á því hvaða hagsmunir liggja þar að baki. Hæstv. ráðherra Logi Einarsson er einmitt að flytja hér frumvarp sem akkúrat uppfyllir þá kröfu eða ósk, eða hótun eða hvað það er, sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson fór með á Útvarpi Sögu og víðar, að það ætti að skrúfa niður styrki hjá ákveðnum fjölmiðlum. Svo gerist það í frumvarpi síðar og það er í hæsta máta óheppilegt — ég ætla hv. þingmanni ekki einhverjar illar hvatir — hvaða meiningar sem voru þar að baki.