fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir leiðbeiningar frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Það er greinilegt að það er viðkvæmt að minnast á þessa hluti en mér finnst eðlilegt að gera það. Auðvitað er þetta ekki bara staðreynd sem liggur á borðinu og allir vita af. Það vita allir af þessum tengslum þannig að ég hélt að þetta væri ekki eitthvað sem mætti ekki nefna hér í ræðu. En ef það er svo þá læt ég vera að gera það á ný. Engu að síður held ég að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gengið svolítið langt í umræðunni um það að halda því fram hér að einhverjir hafi verið með hótanir við fjölmiðla. Varla er það ætlun Sjálfstæðisflokksins að menn skipti um skoðun um það að það megi ekki eða eigi ekki að styrkja (Forseti hringir.) einkarekna fjölmiðla. Það hefur verið mín skoðun um árabil. Við eigum miklu frekar að gera hlutina með öðrum hætti en með beinum fjárframlögum úr ríkissjóði, (Forseti hringir.) en svona er staðan.