fjölmiðlar.
Frú forseti. Það er rétt að taka það fram að það var ekki ætlunin að sneiða hér að einum né neinum heldur einfaldlega að skýra mál mitt. Það er ekki heldur hægt að horfa fram hjá því að umræddur þingmaður sem var rætt hér um tók þátt í umræðunni. Margoft hefur einmitt þessi umræða verið hér um fjölmiðla, um einhverjar ásakanir á þingmenn Flokks fólksins, að þeir hafi uppi hótanir og einhver bullumræða sem hefur verið í gangi þrátt fyrir að enginn þingmaður Flokks fólksins eða sá sem hefur verið átt við hafi verið til staðar í salnum. Ég held því að fleiri ættu að taka þessar ágætu leiðbeiningar hv. þingmanns til sín heldur en akkúrat sá sem hér stendur. En ég vil bara í lokin þakka fyrir þetta. Þetta eru góð ráð sem rétt er að hafa í huga. Auðvitað eigum við að gæta hér hófs en þegar verið er að saka menn (Forseti hringir.) sí og æ um hótanir og/eða ofsóknir (Forseti hringir.) sem eiga ekki við rök að styðjast þá verður auðvitað að ræða það í botn.