fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þessir 7,7 milljarðar eru auðvitað hluti af því, eftir því sem mér skilst, þetta er leiðrétt vegna gamalla lífeyrisskuldbindinga sem eru held ég 3,4–4 milljarðar, ég man ekki töluna alveg.
Ég sakna líka gamla svæðisútvarpsins og t.d. á Ísafirði þar sem ég þekki best til voru þrír starfsmenn, þrír blaðamenn plús hljóðmaður sem störfuðu við fjölmiðlun alla daga. Það er kannski þessi stóra breyting sem hefur orðið á því og við fáum ekki aftur gömlu svæðisútvörpin þótt þau hafi verið góð. Við fengum svo sem Landann en það svarar samt ekki (Gripið fram í: Alls ekki.) til þess sem var. En ég vil bara taka undir með Njáli Trausta, ég sakna oft svæðisútvarpsins.