156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[18:24]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Ég tók þessu þannig að það væri verið að bjóða mér í mjög sérstakan klúbb sem væri haldinn stofnfundur í hér ég á eftir. En ég held að það gæti þurft að uppfæra alls konar tæknibúnað ef við höldum eitthvað áfram með þessar hugleiðingar. Ég hef nú stundum hugsað til þeirra ágætu fréttamanna sem hafa þurft að sinna mínu kjördæmi. Það er auðvitað allt frá Hvalfjarðarsveitinni og langt inn á, ekki á Akureyri (Gripið fram í.) en já, Norðurland vestra og þetta er bara ansi erfitt svæði að ná yfir. Það er örugglega ekki auðvelt starf að vera fréttamaður á þessu svæði. Við erum ekki með fasta starfsstöð eins og er á Akureyri og fyrir austan og maður finnur og ég heyri fleiri fréttir af norðan og austan af því að það er aðeins meira utanumhald. Það er svo sem bara mín tilfinning og ég ætla ekki að staðhæfa það hér.