156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[18:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að tímarnir breytast og það er þessi þróun sem hefur verið. Menn sjá margir eftir svæðisútvarpinu og ég skil það mætavel og það kemur eitthvað annað í staðinn og svona. En ég vildi spyrja hv. þingmann hvort hann trúi því að ef við værum við stödd í fjölmiðlalausu umhverfi, með alla þá tækni sem fyrir liggur og þekkingu, væri það fyrsta sem við myndum gera, ef við fengjum síðan til þess tækifæri að stofna fjölmiðlamarkað, að stofna ríkisútvarp? Getur hv. þingmaður ekki velt því fyrir sér með mér hvort það geti ekki einmitt verið falin í því meiri tækifæri, m.a. fyrir landsbyggðina, fyrir svæðisútvarp, fyrir svæðishlaðvörp sem hafa rutt sér til rúms, hvort það væru ekki meiri tækifæri fyrir þennan rekstur ef RÚV væri ekki svona frekt til fjörsins? Og þá er ég ekki bara að vísa til auglýsingamarkaðarins, heldur starfsemi RÚV í heild, þ.e. uppsóp á starfsmönnum (Forseti hringir.) og þar fram eftir götunum. Eru ekki tækifæri í því fyrir landsbyggðina að draga úr umsvifum RÚV?