fjölmiðlar.
Herra forseti. Ég vil þakka andsvarið. Það er auðvitað spennandi að hugsa til þess að vera með hreint borð þegar maður er að hugsa um fjölmiðla. Það sem ég hef áhyggjur af er að það er auðvitað dýrara að segja fréttir af landsbyggðinni og ég er bara ansi hrædd um að einkareknu fjölmiðlarnir myndu bara hætta að segja fréttir fyrir utan höfuðborgarsvæðið af því að það er dýrt. Það er dýrt eins og ég var að nefna hérna áðan með, ég ætla ekki að segja aumingja fréttamann RÚV í Norðvesturkjördæmi en það er erfiðara að þurfa alltaf að fara. Þannig að ég myndi hafa áhyggjur af því að okkur yrði ekki sinnt. Það þýðir ekki að það er alveg áhugavert að byrja með hreint borð og skoða hvernig við myndum gera það. En ég horfi líka á RÚV. Ég kannski fæ að fara í það í seinna andsvari. RÚV hefur öðru hlutverki að gegna.