156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[18:29]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir seinni fyrirspurnina. Það gæti nú verið dálítið flókið að vera að banna og er ég nú ekki manneskjan sem vill banna hluti. En það er auðvitað þannig, eins og við höfum rætt hér, að umhverfið hefur breyst mjög mikið og við erum að nota þessa samfélagsmiðla. Við öll sem hér erum, tel ég, við erum öll að nota samfélagsmiðla í okkar daglega lífi. Svo eru auðvitað fjölmiðlar, þar á meðal ríkisfjölmiðillinn okkar RÚV, að nota samfélagsmiðla í sínu starfi. Ef þið eruð ekki að fylgja RÚV á TikTok þá mæli ég með því, alveg stórskemmtilegt efni þar sem þau eru að reyna að höfða til yngra fólks af því að þau nota þann miðil. Ég er alla vega ekki sú manneskja sem vill alltaf vera að banna allt en það má alveg skoða hlutina og hvernig við getum — ég sé eftir þeim tekjum úr landi, ég sé eftir þeim. Ég myndi vilja eiga samræður við þingmanninum um hvernig við gætum við látið eitthvað af þeim tekjum verða eftir hér.