fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Vegna þess að hún sagðist vera mikill aðdáandi RÚV þá ætla ég að fá að segja að ég er, sem hlustandi, aðdáandi t.d. morgunútvarpsins, frábærir þættir, Heimsglugginn hans Boga, Berlínarspjallið og Borgþór með dönsku málefnin, ofboðslega áhugaverðir þættir sem ég vil gjarnan hlusta á. Ég sé sjálf reyndar ekki ástæðu fyrir því að ríkismiðillinn þurfi að vera með tvær útvarpsstöðvar og sitt hvorn morgunþáttinn og síðdegisþáttinn og allt það. Ég held að það væri hægt að sameina þetta. Spurningin mín átti í rauninni að vera sú hvort hv. þingmaður gæti ekki verið sammála mér um að ríkisfjölmiðillinn, með áskrift að ríkistekjum, plús auglýsingatekjur, gangi ekki of langt þegar hann færir sig stöðugt yfir í nýja og nýja miðla með því að framleiða sérstaklega hlaðvörp, notar ekki bara efni sitt til að setja það í hlaðvarpsveitur heldur fer í sérstaka framleiðslu á hlaðvörpum. En kannski svaraði hv. þingmaður því hérna áðan með TikTok-inu, (Forseti hringir.) sem ég hef reyndar mikið hneykslast á RÚV með.