fjölmiðlar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það hafa oft verið deilur á mínu heimili út af RÚV og það er sérstaklega vegna þess að ég er mikill aðdáandi Rásar tvö og sambýlismaður minn hlustar mjög mikið á Rás eitt og svo skipti ég mjög reglulega yfir á Bylgjuna. Þetta hefur valdið miklum deilum á mínu heimili, hvað við eigum að hlusta á. En sem betur fer er þetta ekki eftir línulegri dagskrá.
Mér finnst bara sjálfsagt að skoða þetta sem hv. þingmaður nefnir. Ég tel að það eigi ekkert að vera að banna neitt heldur eigum við bara að skoða þetta almennilega. Ég vil biðja þingmanninn um að gefa TikTok-inu hjá RÚV smá séns, gefa því tækifæri, af því að þetta er alveg stórskemmtilegt efni og segir fréttir á þann máta sem hentar mér mjög oft, bara einfaldan. Ég er líka mikill aðdáandi KrakkaRÚV og Krakkafrétta — dásamlegt efni. Það er ekki langt síðan ég fór fram á það við fréttamenn Krakkafrétta að útskýra fyrir mér bókun 35. (Forseti hringir.) Það hefði verið mjög gagnlegt fyrir mig.
(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að hefja mál sitt á því að ávarpa forseta.)