156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

fjölmiðlar.

256. mál
[18:35]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir framsögu hennar í þessu máli. Ég kvartaði undan aðkomu Samfylkingarinnar að menntamálum. Hv. þingmaður fletti upp þremur ræðum sem þingmenn Samfylkingarinnar hafa flutt hér í pontu. Ég hlustaði a.m.k. á tvær þeirra og þær fjalla um að halda áfram á þeirri vegferð sem við höfum verið á í menntamálum, sem er vegferð sem hefur skilað 40% nemenda án grunnfærni í lesskilningi. Mig langar því að spyrja hv. þingmann, af því að það hefur ekkert komið fram í ræðum þingmanna Samfylkingarinnar hér í pontu um það hvernig þeir hyggjast vinna bót á því að íslensk ungmenni hafa ekki grunnfærni í lesskilningi: Hvaða leiðir sér þingmaðurinn í því að ná árangri í lesskilningi með börn í skyldunámi?