fjölmiðlar.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Ég er á því að til þess að tryggja raunverulegt fjölmiðlafrelsi þurfi fjölmiðlar að geta rekið sig á viðskiptalegum forsendum. Ég hef verið talsmaður þess um árabil að taka RÚV af auglýsingamarkaði og einnig að draga niður í styrkjum til einkarekinna fjölmiðla og þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún telji það líka áhyggjuefni þegar ákveðin sérhagsmunaöfl eru greinilega að halda hér úti fjölmiðlum fyrir gríðarlega háar upphæðir til þess að tryggja ákveðna hagsmuni, hvort það sé ekki eitthvað sem verði líka að horfa til í þessari umræðu um fjölmiðla, því að öll viljum við hafa frjálsa og góða fjölmiðla. Ég vil bara benda á að þessi umræða, sem kemur í kjölfarið á klukkutímalöngum þætti á Útvarpi Sögu, þar sem ég taldi einmitt að framganga ákveðins miðils sem var nefndur hér fyrr í umræðunni, undirstrikaði að þarna væri í rauninni verið að tryggja ákveðna hagsmuni en ekki að stunda fréttamennsku. Ég tel jafnvel, þegar út í þetta er farið, að þegar þetta er orðið svona auðsætt með einstaka fjölmiðla þá sé jafnvel verið að rýra enn frekar viðskiptalega hagsmuni miðilsins. Við viljum auðvitað hafa hér frjálsa og góða fjölmiðla en þegar það er orðið svona auðsætt að það sé bara verið að gæta ákveðinna hagsmuna, að það sé verið að sópa fyrir ákveðin öfl í samfélaginu á kostnað annarra, þá er það ekki síður áhyggjuefni en akkúrat að RÚV sé að taka hér alla peningana.