fjölmiðlar.
Virðulegur forseti. Ef þetta er svona ofboðslega auðsætt eins og hv. þingmaður segir að það sé hjá tilteknum fjölmiðlum hvert er þá vandamálið? Ef allir sjá hvernig hagsmunagæslan er, er ekki bara gott að það sé augljóst og liggi fyrir? Hver er hins vegar hagsmunagæslan hjá RÚV? Það þætti mér betra umhugsunarefni fyrir hv. þingmann. Er það jafn auðsætt hverra erinda RÚV gengur? Það er pólitísk slagsíða á RÚV, hefur alltaf verið — ekki í öllum þáttum og ekki alltaf en þegar það er pólitísk slagsíða þá er hún alltaf í eina átt. Það er aldrei pólitísk slagsíða til hægri, ekki einu sinni í miðið, alltaf þegar það er pólitísk slagsíða á RÚV þá er hún til vinstri. Hversu margir dagskrárgerðarmenn eru t.d. með þætti um gagnrýni á grænstefnu Evrópusambandsins? Ætli það sé einhver slíkur þáttur í gangi? Eða einhverja skynsemi í umhverfisvernd? Ætli það séu einhverjir slíkir þættir í gangi á RÚV? Nei. Hvað haldið þið að séu margir þættir þar sem dagskrárgerðarmenn þylja yfir hlustendum linnulaust að heimurinn sé að farast vegna losunar koltvísýrings, að heimurinn sé bara að farast á morgun og ef ekki á morgun þá seinni partinn í dag? Þetta er pólitíska slagsíðan og í þetta fer fé skattgreiðenda. Svo talar hv. þingmaður um — og hann er að vísa væntanlega í Morgunblaðið og útgerðarmenn sem setja fé í það. Hv. þingmaður getur stofnað sinn eigin fjölmiðil eða hlaðvarp eða eitthvað sem gengur erinda smábátasjómanna eða strandveiði. Þá liggur það bara fyrir. Munurinn á RÚV og Morgunblaðinu er hins vegar sá að bæði ég og hv. þm. Sigurjón Þórðarson getum komið að efni og getum skrifað pistla í Morgunblaðið. Hjá RÚV er það ekki þannig og ég held að hvorugu okkar væri boðið að vera með þætti eða dagskrárgerð hjá RÚV.