156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

varnarmálalög.

280. mál
[19:03]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á varnarmálalögum, nr. 34/2008. Þetta frumvarp er unnið í utanríkisráðuneytinu að viðhöfðu miklu samráði við innviðaráðuneyti, forsætisráðuneyti og Fjarskiptastofu. Frumvarpið felur í sér að starfsemi CERT-IS, netöryggissveitarinnar, verði flutt frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála fest í sessi sem lögbundin verkefni sem heyra undir utanríkisráðherra.

Með frumvarpinu eru sett ný ákvæði í 7. gr. fyrrnefndra varnarmálalaga, nr. 34/2008, þar sem starfsemi netöryggissveitarinnar er gerð að lögbundnu verkefni utanríkisráðuneytisins og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála skilgreind sem verkefni sem falla undir utanríkisráðuneytið. Samfara þessu eru með frumvarpinu gerðar svonefndar afleiðingarbreytingar á öðrum lögum, til að mynda um Fjarskiptastofu, fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.

Frá því allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hófst 24. febrúar 2022 hafa fjölþáttaógnir sem beinast einmitt að aðildarríkjum NATO, Atlantshafsbandalagsins, þar með talið Íslandi, stóraukist. Netárásir eru ein tegund fjölþáttaógna og eru netöryggi og netvarnir mikilvægur þáttur í að fyrirbyggja, verjast og takast á við afleiðingar af slíkum árásum. Netöryggissveitin CERT-IS gegnir mjög mikilvægu hlutverki við að tryggja einmitt netöryggi og netvarnir á Íslandi og takast á við slíkar ógnir. Með því að færa netöryggissveitina undir utanríkisráðuneytið er sveitin færð einmitt nær stefnumótun og framkvæmd öryggis- og varnarmála á Íslandi. Til að mynda í Svíþjóð heyrir sveitin undir almannavarnastofnun Svíþjóðar sem heyrir síðan undir varnarmálaráðuneyti Svíþjóðar. Í Bretlandi heyrir sveitin undir upplýsinga- og öryggisstofnun Bretlands sem síðan heyrir undir utanríkis- og samveldisráðherra, svo dæmi séu nefnd.

Ég var á fundi í Borgundarhólmi í gær og í fyrradag þar sem ýmislegt var rætt, mjög mikilvæg málefni, ekki síst sem tengjast Úkraínu og hvernig hægt er að — þessar þjóðir sem hafa verið hvað ötulastar ásamt Bretlandi og auðvitað Bandaríkjunum í stuðningi við Úkraínu. Þá var auðvitað eitt og annað rætt, ekki síst m.a. starfsemi skuggaflota sem felur í sér miklar ógnir við okkar bandalagsríki, dregur úr vægi viðskiptaþvingana ef það er ekki tekið nægilega fast á þessu. Síðan ræddum við einmitt „hybrid“ eða fjölþáttaógnir, og af því að þetta er nú allt stjórnmálafólk sem gegnir stöðu ráðherra þá ræddum við líka hvernig við getum fengið fólk til að átta sig á hvað fjölþáttaógnir þýða, og fjölþáttaógnir í stærri myndinni, af því að netógnir og netárásir falla undir fjölþáttaógnirnar. Þá eru til að mynda eitranir sem við höfum upplifað víða í Evrópu sem hafa verið gerðar, við vitum það, m.a. af hálfu Rússa. Við erum að horfa upp á ýmiss konar skemmdarverk sem eru að undirlagi ekki einhverra bara glæpasveita og glæpastarfsemi heldur ekki síst undir skjóli og undir regnhlíf ríkja. Síðan höfum við séð manndráp og morð á einstaklingum sem hafa ógnað tilteknum ríkjum. Allt þetta eru m.a. fjölþáttaógnir sem þarf að fara gegn.

En netöryggi og netárásir eru einmitt ein tegund af fjölþáttaógnum og með því að taka þetta skref erum við að mínu mati að færa þetta í þá veru að ýta undir varnarhluta þess sem netárásir kunna að hafa í för með sér og tryggja það að CERT-IS hafi ekki bara fyrsta flokks vinnuaðstöðu eins og er núna í utanríkisráðuneytinu með aðgangsstýringu, sólarhringsöryggisvakt og góðu aðgengi og allt það heldur er líka markmiðið að færa ekki síst eftirlit og viðbrögð í íslenska netumdæminu, í okkar umdæmi, nær þeim þjóðum sem við erum alla jafna að bera okkur saman við, m.a. með sólarhringssívöktun.

Frumvarpið felur ekki, og ég vil draga það fram, í sér breytingar á núverandi lögboðnum verkefnum netöryggissveitarinnar, en með fyrirhuguðum breytingum, eins og ég segi, mun sveitin í auknum mæli taka þátt í verkefnum tengdum netvörnum eins og ég gat um áðan, og netöryggi á sviði varnarmála, m.a. á vettvangi NATO, vettvangi Atlantshafsbandalagsins. Þetta skiptir að mínu mati mjög miklu máli og þetta er skref sem við verðum að taka í því umhverfi sem við búum við í dag. Hvort sem okkur líkar það betur eða verr þá er þetta raunveruleiki sem við erum að fást við og við viljum ekki síst sem stofnaðilar að NATO vera þessi verðugi aðili og bandamaður sem gerir það sem þarf til að sýna að við tökum þetta alvarlega og gerum það sem við getum til þess að styrkja okkar eigin varnir því að með því erum við líka að styrkja áfallaþol og getu Atlantshafsbandalagsins í heild sinni.

Íslensk stjórnvöld, við höfum aukið framlög til varnarmála og eru þessir fjármunir m.a. nýttir til þess að styrkja eins og við þekkjum innviði, áfallaþol og viðnám hér innan lands. Starfsemi netöryggissveitarinnar verður að sjálfsögðu þar engin undantekning og hyggst ég sem utanríkisráðherra styrkja netöryggissveitina með því að fjölga starfsfólki. Ég held að einn stærsti parturinn af því að hækka hlutfall okkar til varnarmála sé einmitt að efla mannauðinn, fjárfesta í mannauði, til þess einmitt að vera í stakk búin til að takast á við hinar ýmsu ógnir sem steðja að ríkjum, ekki síst lýðræðisríkjum samtímans. Hluti af því sem mér finnst skipta máli, ekki bara með því að efla þá innviði sem við höfum farið af stað með á síðustu misserum og ætlum að halda áfram, hvort sem það er í Helguvík eða öryggissvæðinu í Keflavík, sem við þurfum að bæta enn frekar, er að mannauðurinn er hér gríðarlega mikilvægur. Þess vegna vil ég leggja áherslu á það að fjölga starfsfólki. Ég vil tryggja nauðsynlega þjálfun og endurmenntun fólksins sem og endurskoða tæki og tæknikost, m.a. með tilliti til aukinna fjárfestinga í nauðsynlegum tækja- og hugbúnaði. Ég vona innilega að um þetta hér á Alþingi náist breið samstaða. Þetta mun tryggja sveitinni bættar forsendur og betri starfsskilyrði til að sinna lögbundnum verkefnum sínum en á sama tíma verður hægt að styrkja hlutverk hennar þegar kemur að netöryggi og netvörnum á sviði varnarmála. Þetta finnst mér vera eitt af stærstu verkefnum okkar Íslendinga núna, að taka af festu og samstöðu á þessum málum af því að það eykur líka trúverðugleika að héðan verði samstöðutónar þegar kemur að vörnum og öryggi landsins okkar.

Með því að netöryggissveitin færist frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins verður jafnframt tryggð ákveðin fjarlægð á milli eftirlitsstjórnvaldsins, þetta skiptir líka máli, sem er Fjarskiptastofa og síðan netöryggissveitarinnar. Fjarskiptastofa hefur nú eftirlit með starfsemi aðila á þeim sviðum sem netöryggissveitin veitir þjónustu en slíkt kann auðvitað að hafa áhrif á upplýsingamiðlun til sveitarinnar. Breytingunni er því einnig ætlað að auka enn frekar upplýsingaflæði um netöryggisatvik til sveitarinnar. Markmið frumvarps þessa er því að styrkja netöryggissveitina CERT-IS og þar með netöryggi á Íslandi og þetta er og á að vera okkur metnaðarmál.

Þessi breyting er aðeins eitt skref í átt að bættu netöryggi og netvörnum á Íslandi og í takt við áherslur í ríkisstjórnarsamstarfinu á mikilvægi varnar- og öryggismála og mikilvægi þess að horfa heildstætt á málaflokkinn. Ég hef margoft áður greint frá því að þegar við vorum í stjórnarmyndunarviðræðunum var auðvitað margt rætt og margt er farið af stað og við erum að ræða hér ýmis mjög mikilvæg mál en við eyddum töluverðum tíma í að ræða um varnar- og öryggismál, meðvitaðar um að það þyrfti að taka á þessum málum af festu, halda áfram því sem hefur verið gert en gera það af enn frekari festu og að markmiðin séu ekki einhver feluleikur, að það sé ekki feluleikur í kringum þennan mikilvæga málaflokk heldur að hann sé bæði öllum sýnilegur en líka það að samfélagið taki þátt í því að vera meðvitað um það hvað það skiptir okkur máli að tryggja varnir landsins. Hluta af því erum við hér að ræða, þ.e. að efla netöryggi og netvarnir á Íslandi. Þetta frumvarp er hluti af því.

Þó að það láti ekki mikið yfir sér er þetta hluti af því að horfa með heildstæðum hætti á þennan mikilvæga málaflokk sem er rætt um á nokkurn veginn öllum fundum sem ég sæki sem utanríkisráðherra en líka sem varnarmálaráðherra, þar sem öll ríki eru að horfa inn á við en líka út á við hvernig við getum saman gert okkur sterkari. Þegar ég segi okkur er ég að tala um líkt þenkjandi ríki eins og þau sem eru innan Atlantshafsbandalagsins. Hluti af því, eins og ég gat um áðan líka, er að verða þessi verðugi bandamaður og gera það sem þarf og við getum innan þess ramma sem hér er á Íslandi. Markmiðið er bætt og aukið netöryggi í okkar íslenska netumdæmi. Netöryggissveitin og utanríkisráðuneytið munu að sjálfsögðu halda áfram, það er algjört lykilatriði að við vinnum ekki í sílóum, að öll ráðuneyti, hvort sem það er utanríkis-, dómsmála-, innviðaráðuneyti eða önnur ráðuneyti, að við pössum upp á það að við vinnum ekki í sílóum og ég vil segja það, bæði forvera mínum í starfi en líka núna því starfsfólki sem hefur komið að úr hinum ýmsu stofnunum samfélagsins okkar sem snerta á þessum málum, að það er verið að vinna af einlægni og verið að vinna að festu, af því að markmiðið er svo miklu stærra og meira en það að ráðuneyti festist í sílóum eða stofnanir eftir því. Samvinna, að bæta mannauðinn, samskipti — þannig verðum við sterkari saman, þannig verðum við verðugri bandamaður og þannig verðum við ekki bara traustsins verð heldur erum við líka að sýna fram á það að við erum að sækja fram til að verja m.a. frelsi. Við munum halda áfram að sjálfsögðu, og það er mikilvægt, undirstrika það, að eiga gott samstarf við innviðaráðuneyti, við dómsmálaráðuneyti, við Fjarskiptastofu, við ríkislögreglustjóra, alla þessa aðila og önnur ráðuneyti og stofnanir til þess að halda áfram eflingu netöryggis á Íslandi. Þetta þýðir auðvitað líka að við þurfum að tryggja öryggi fyrirtækja á markaði, einkafyrirtækja, passa upp á að þau verði — til að mynda hluti af netárásum er m.a. árásir á einkafyrirtæki, árásir á háskólastarfsemi, árásir á fræðasamfélag, upplýsingasamfélag, árásir ríkja, því stendur okkur mesta ógnin af, árásum ríkja til þess að rugla samfélög, skapa óvissu, óöryggi eða bara einfaldlega safna upplýsingum til þess að kúga einstaklinga og fyrirtæki eins og þekkt er.

Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi gert grein fyrir efni þessa frumvarps. Eins og ég segi, það er ekki margar blaðsíður en þetta er gríðarlega mikilvægt skref, hluti af þessari heildarnálgun okkar sem hér er vonandi að efla varnir okkar og öryggi á þessu sviði, netöryggi. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. utanríkismálanefndar og um leið 2. umræðu. Ég vona að við náum einmitt að klára þetta mál sem allra fyrst.