varnarmálalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég get verið sammála henni í mjög mörgum þáttum. Ég vil reyndar ítreka það sem ég hef áður sagt hér að ég held að það sé mjög mikilvægt að á tímum sem þessum þá ræðum við öryggis- og varnarmál og alþjóðamál mjög reglulega hér í þessum þingsal. Ég held að það sé mikilvægt fyrir okkur öll og ekki síst mikilvægt fyrir ráðherra að hafa breiðan stuðning hér í þeim málum sem undir eru.
Varðandi það frumvarp sem hér er til umræðu, um að færa CERT-IS sveitina undir utanríkisráðuneytið, þá sé ég vel að það eru mörg rök sem hníga í þá átt en mig þyrstir í að vita hvort aðrar leiðir hafi jafnframt verið skoðaðar. Það hefur oft verið bent á það hvort þetta ætti kannski frekar heima undir ríkislögreglustjóra, þetta eru jú borgaralegar varnir að einhverju leyti. Átti sér stað einhver umræða um það? Við sjáum auðvitað að þetta er með mismunandi hætti í nágrannalöndunum okkar og löndunum sem við berum okkur saman við, ef hæstv. ráðherra gæti farið aðeins yfir það. Þá langar mig einnig að spyrja: Mun þessi tilfærsla, þar sem CERT-IS er þá klárlega varnarmál, og ég get algerlega tekið undir það, hafa áhrif á útreikninga okkar hvað varðar framlög til varnarmála? Þá er ég að tala um NATO-prósentuna sem er auðvitað skammarlega lág hér á Íslandi.