varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir áhersluna á netöryggismál því að ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við eflum okkur á þessu sviði. Við ræddum það einmitt hérna í þinginu í gær hvað þessar ógnir eru að breytast og t.d. bara í samhengi við raforkumálin þá er gríðarlega mikilvægt að við séum miklu sterkari.
Þú talaðir, hæstv. ráðherra, um aukningu í mannauði og ég má til með að deila með þér að þegar fjármagn var aukið til þessa málaflokks síðast, þ.e. Fjarskiptastofa fékk meira fjármagn, þá skilaði það sér ekki til þeirra undirstofnana sem eru lífsnauðsynlegar til þess að það sé hægt að sinna góðu viðbragði. Ég er að tala um Samgöngustofu, ég er að tala um Raforkueftirlitið þar sem er þekking sem verður að vera hluti af viðbragði og það eru lagaheimildir hjá þessum stofnunum sem þarf að virkja til þess að það sé raunverulega hægt að sinna þessu samhæfingarhlutverki vel.
Því langar mig að spyrja þig hvort þú sjáir fyrir þér að það verði aukið við mannauð hjá ráðuneytinu en sömuleiðis að horft sé á það að styrkja starfsemi hjá stofnunum sem margar hverjar eru undirmannaðar og eiga núna að fara að rísa upp og sinna þessu hlutverki kannski enn betur miðað við áherslur ríkisstjórnarinnar.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna þingmenn á að vísa til ráðherra og annarra þingmanna í 3. persónu.)