varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið og hvetja hæstv. ráðherra um leið til dáða í því að tryggja að þessi tilfærsla skili raunverulega sínu markmiði en verði ekki bara til að dreifa verkefnum enn frekar, sem stundum er hætta á.
Mig langar hins vegar til að spyrja í þetta seinna sinn um það að vera verðugur aðili, að vera verðug bandamaður; hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að við séum jafnvel að leggja fram sérþekkingu í gegnum fólk, útsent fólk annars staðar í stað þess að vera að taka þátt í hernaðarlegum verkefnum. Hvort þetta sé einhvers konar áhersla í þá átt?