156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

varnarmálalög.

280. mál
[19:32]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir fína ræðu um mikilvægt mál, víða komið við. Þetta eru kannski ein stærstu málin í okkar samfélagi sem við erum að fást við og þarna liggur kannski mesta ógnin í samfélaginu, það eru fjölþáttaógnir og síðan netöryggismálin sem við erum að fást við og ræða hér í dag.

Mig langaði rétt að koma að spurningu til hæstv. ráðherra varðandi netöryggismálin og benda á skýrslu Björns Bjarnasonar og Jónu Sólveigar Elínardóttur frá 2020 sem var unnin fyrir utanríkisráðherra Norðurlanda þá, svipuð skýrsla og Stoltenberg eldri hafði gert fyrir utanríkisráðherra Norðurlanda 2010, þetta var 2020 og það er töluverð áhersla á þessi mál í þeirri skýrslu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé ekki bara kominn tími á endurskoðun einmitt á þeirri skýrslu vegna þessarar gífurlega hröðu þróunar sem hefur orðið bara á undanförnum árum. Þessi skýrsla frá 2020, hún varð svolítið gömul svona á tveimur árum. Það breyttist allt með innrásinni í Úkraínu og öll þessi mál fóru í nýjar hæðir, ef hæstv. ráðherra gæti komið rétt inn á það. Það hefur orðið gríðarleg breyting hér í fjárveitingum og áherslum hjá stjórnvöldum í þessum málum. Mig minnir að í fjárlagafrumvarpinu 2019 fyrir 2020 hafi verið settar 200 milljónir í fjölþáttaógnasetrið, þ.e. öndvegissetrið í Helsinki, og síðan netöryggis- eða öndvegissetrið í Tallinn. Síðan sjáum við þessa gríðarlega miklu breytingu sem hefur orðið á netöryggissveitinni þannig að þetta er góð þróun enda erum við komin á allt annan stað (Forseti hringir.) á listum yfir netöryggismál en við vorum bara fyrir fimm, sex árum. Það er gríðarlegur árangur. (Forseti hringir.) En samvinnan við Norðurlöndin, er það ekki okkar stærsta mál, öflugt samstarf innan NORDEFCO við Norðurlöndin í netöryggismálum?