varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Ég hefði gjarnan óskað þess að ræðutími hv. þingmanns hefði verið lengri því að þetta var góð og innihaldsrík ræða. Mér fannst hv. þingmaður einmitt koma mjög vel inn á það að þegar við vorum í NATO-nefndinni á sínum tíma, ég man að við ræddum það, fannst okkur að það væri allt að breytast og allt að gerast og það væru öðruvísi áherslur og þær væru ekki komnar heim. En síðan hefur veröldin breyst frá því sem okkur fannst þá vera í gangi. Ég fagna því þess vegna að heyra að hv. þingmaður styður þetta mál og auðvitað vinnum við þetta áfram í nefnd. Mér finnst líka vera svo mikil fegurð í þessu, bæði í þessu máli en líka í því hvernig við Íslendingar getum unnið, og ég kom aðeins inn á það áðan. Við erum fljót að bregðast við. Við getum bara straumlínulagað okkar kerfi að okkur. Tökum það sem er gott frá öðrum þjóðum og setjum það hingað inn. En við getum líka tekið upp okkar sjálfstæða mat á því hvað hentar okkar vörnum miðað við umhverfið í dag. Er þetta algilt um aldur og ævi? Nei, en í dag, eins og umhverfið er núna, er þetta það skref sem ég og þessi ríkisstjórn viljum stíga og mér finnst gott að heyra að við erum fleiri sem teljum þetta rétt hvað varðar þau skilaboð sem við þurfum að senda út í umhverfið. Það er einmitt þetta: Við ætlum að efla okkar mikilvægu og frábæru netöryggissveit, CERT-IS. Við ætlum að gera það enn frekar. Það gerum við m.a. í samvinnu við þingið en líka með þeim áherslum sem mér finnst alltaf gott að finna, þegar ég er á fundi með hv. þingmanni, sem verður mjög tíðrætt um varnar- og öryggismál, þ.e. að við gerum þetta af alvöru.