156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

varnarmálalög.

280. mál
[19:58]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti: Það er kannski ekki eiginleg spurning í í andsvarinu frá hæstv. ráðherra. Ég minntist aðeins á grein sem við hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir skrifuðum í desember 2020 um þessi mál og þetta er svolítið merkilegt. Þá var fyrirsögnin á greininni: Netöryggi er þjóðaröryggi. Það eru fjögur og hálft ár síðan og þá var enginn almenn umræða, áhugi var mjög takmarkaður eins og stundum áður á þeim tíma á þessum málum. Það hefur nú reyndar gjörbreyst. Þetta kemur líka töluvert fram í skýrslubeiðni sem ég stóð að ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins hérna fyrir nokkrum árum sem hét Innviðir og þjóðaröryggi, þar sem er líka komið inn á þessi mál sem snúa að þessu svona heildstætt, þar er mjög margt fróðlegt. Í þeirri skýrslu kemur eiginlega í fyrsta skipti fram, það eru ekki mörg ár síðan, fjögur, fimm ár, þar sem stjórnvöld voru að svara, einstök ráðuneyti, um þjóðaröryggismál, varðandi einstaka þætti inni í kerfinu. Þess vegna var það líka áhugavert, eru ekki nema þrjú, fjögur ár, síðan, hversu mikil gerjun hefur verið á ótrúlega skömmum tíma.

Við þekkjum þessa umræðu um hvað við verjum til varnar- og öryggismála. Ætli það sé ekki tala sem hefur nú svona almennt verið notuð sem maður var að skoða í haust, þessi 0,14%? Þetta myndi þá fara undir það. En síðan höldum við vonandi áfram umræðu hér um hver næstu skref séu þá í öðrum málum.