156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

varnarmálalög.

280. mál
[20:00]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er sönn ástæða til að fagna því frumvarpi sem hæstv. utanríkisráðherra mælir fyrir hér í dag. Ég ætla ekki að hafa þetta mjög langt hjá mér en mér finnst ég hins vegar ekki geta sleppt því að koma hér og ávarpa ykkur og fagna þessum tímamótum þar sem við erum að setja þennan málaflokk á þann sess sem hann á skilið. Ógnir samtímans í dag — við vitum það núna og erum loksins, leyfi ég mér að segja, að þroskast inn í þá umræðu að fara að gera aðgreiningu hér á varnartengdum málefnum annars vegar og borgaralegum hins vegar en það hefur verið í gegnum tíðina of óskýr munur á þessu í praktík. Okkur hefur oft skort forsendur og sal í samfélaginu til að gera það með opinskáum hætti, þ.e. að aðgreina þetta. Ég lít svo á að hér séum við að færa okkur nær í átt að því skipulagi sem þekkist á Norðurlöndunum í þessum málaflokki sérstaklega. Ég finn ekki fyrir öðru en að það sé mikill stuðningur fyrir því fyrirkomulagi hér, alla vega í þingsal, og í samfélaginu í heild sinni. Þetta er bara tímabær og æskileg breyting sem við verðum að innleiða bara í litlu smávöxnu samfélagi og sem gegnir engu að síður mjög stóru netumdæmi og er sérstaklega viðkvæmt fyrir fjölþáttaógnum. Nú þurfum við líka að skilja sem samfélag, og við erum að axla þá ábyrgð sem kjörnir fulltrúar, að við berum þá ábyrgð að reyna að gera fólki í hugarlund og koma því í skilning um það hvað nákvæmlega fjölþáttaógnir eru. Þetta er ekki beinlínis á tungubroddinum hjá fólki, við erum ekki með öll þessi mál á takteinum eins og okkar helstu sérfræðingar í málaflokkunum. Maður reynir ekkert að gorta sig af einhverri sérþekkingu þó að maður hafi nú reyndar unnið með þennan málaflokk í nokkur ár. En maður skilur að fólk verður hrætt við það sem þekkir ekki.

Ég er ekkert að gera lítið úr þeirri ógn og þeirri hættu sem við stöndum frammi fyrir en við eigum samhliða þessu að standa fyrir mikilli fræðslu til almennings í einhvers konar formi sem ég hef ekki kannski endilega þekkingu á hvernig væri best fyrir komið. En þarna er ég að tala um meiri og nánari kennslu á sviði upplýsingatækni í skólum landsins, á vettvangi fullorðinsfræðslunnar, í menntaskólum, ég tala nú ekki um að þá þurfum við að fjárfesta í háskólasamfélaginu, í sérstökum leiðum sem standast alla samkeppnishæfa mælikvarða á heimsvísu þannig að við getum menntað það fólk sem við þurfum að hafa starfandi á þessum vettvangi hér heima og jafnvel haft eitthvað til að deila með umheiminum og fá hingað til okkar fólk til að stunda nám á þessu sviði.

Ég hef hlustað hér á ræðu hæstv. utanríkisráðherra og hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar og ég hef ekki miklar áhyggjur af því að við eigum ekki eftir að ná góðri sátt um þetta mál. Ég ætla hins vegar að leggja áherslu á að það er ekki bara mikil hætta fólgin í því að hér sé ráðist inn á mjög mikilvæga innviði eins og raforkukerfi og heilbrigðiskerfi eins og er t.d. fordæmi fyrir, írska heilbrigðiskerfið var næstum því sett á hliðina í nokkra daga árið 2021 sem olli, ef ég fer ekki rangt með, a.m.k. 100 millj. kr. milljón evra tjóni — það er ekki bara mikilvægt að vernda þessa innviði heldur eigum við líka ekki að gera lítið úr bara, samviskustríði, hvernig getur maður orðað það? Það er verið að ráðast á samfélagsvitundina, samfélagssáttina og búa til usla og ráðast að stjórnvöldum og það er verið að fara innst undir húðina á fólki og aðilum sem eru til þess fallnir að vera móttækilegir fyrir efasemdarfræjum frá óvinveittum öflum úti í heimi sem vilja telja borgurum þessa lands trú um að íslenska ríkið og stjórnvöld hér á landi séu ekki með þeim í liði. Þetta er ekki bara einhver skrumskæling eða svartsýnisspá, þetta er bara að gerast og þetta er meira að segja að gerast á Norðurlöndunum. Við vorum að fjalla um þetta hvað það er mikill vettvangur fyrir þessu t.d. í Finnlandi. Þetta tengist inn í fjölmiðlaumræðuna sem fór fram áðan. Ég hef kannski ekki tíma til að fara grundigt yfir þetta en mér finnst sjálfsagt og eðlilegt og rétt að minnast á þetta.

Hins vegar vitum við að vettvangur þessa verkefnis er og verður auðvitað utanríkismiðaður. Ég vænti þess líka að málefni sem varða þessa tilteknu netöryggissveit, CERT-IS, eigi heima í utanríkismálanefnd og við sem sitjum í þeirri ágætu nefnd munum koma til með — og lofa ég því bara hér með og ætla ég bara að gera það upp í ermina mína, hvernig sem fólk kýs að kalla það — að sýna verkefnum hennar áhuga. Ég vona líka að nefndin fái, og hæstv. ráðherra hefur komið inn á það hér í ræðustól, aðbúnað og stuðning til að sinna verkefnum sínum. En þá vil ég hvetja til þess, og það er ekki að ástæðulausu sem ég segi þetta, að það verði haldnar reglulegar æfingar og það verði ekki bara „usual suspects“ sem eru teknir inn í það. Ég er að benda á að það eru opinberar stofnanir þarna úti, ég er að tala um Reykjavíkurborg — ég var þar persónuverndarfulltrúi í mörg ár og kom að því að mjög erfiða verkefni að vera svokallaður regluvörður netöryggismála og upplýsingaöryggis sem fæstir vita að er raunverulegt verkefni persónuverndarfulltrúans, ekki bara að banna myndatökur í skólum, það var það leiðinlegasta í verkefninu, heldur var það upplýsingaöryggi, það var að tryggja eignarhald og umráð yfir gögnum og þessir aðilar sem falla undir mikilvæga innviði og hafa kannski ekkert ofsalega relatífan snertiflöt á verkefnum netöryggissveitarinnar geta samt verið „stake holders“. Ég held að það væri bara samfélagslega ábyrgt af okkur, vegna þess að ég veit að CERT-IS hefur búið að því að geta stundað æfingar, að geta verið öðrum fyrirmynd í því hvernig við erum með viðbúnað og langtímasýn í þessu en ekki bara viðbragð þegar allt er farið í skrúfuna. Þarna reyni ég að tala verkefni CERT-IS upp og ég er bara bjartsýn um að hún eigi eftir að smita út frá sér í metnaði sínum og sérþekkingu.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Mig langar bara að styðja við ekki bara hæstv. ráðherra heldur líka bara þingheim allan í því að halda þessu samtali lifandi á lofti. Ég fagna því hér að við séum á sama máli um mikilvægi verkefnisins og ég vonast til þess að umræður um þetta í nefndinni sem og í þingsal framvegis verði bara gjöfular og góðar og við verðum öll ótrúlega vel að okkur í netöryggi og hvernig við getum tryggt það sem best verður og fælum héðan í burtu óskemmtilega hópa sem hafa það markmið að búa hér til usla, hvernig svo sem hann lítur út.