varnarmálalög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu. Þetta með fjölþáttaógnir og falsáróður á samfélagsmiðlum og að mennta samfélagið í þessu máli er gríðarlega mikilvægur punktur sem hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir kemur inn á í þessu samhengi. Netvarnir, sem við erum að ræða hér, eru auðvitað mikilvægar í bæði borgaralegu tilliti og vegna varnarhagsmuna þjóðanna. Það á alls ekki að minnka vægið að við séum að ræða mikilvægi þess í borgaralegu tilliti líka. En allt tengist þetta eins og það er orðið í dag og þar bera stjórnvöld mikla ábyrgð gagnvart almenningi einmitt að gæta að þessu, ekki síst upplýsingagjöf og fræðslu. Þetta er kannski punkturinn, og það sem er lykilatriði í þessu og fjölþáttaógnir ganga út á, að netógnin má ekki grafa undan undirstöðum lýðræðisþjóðfélaga eins og við sjáum ítrekað reynt af hálfu netþrjóta. Þar þarf hver þjóð að leggja sitt af mörkum svo unnt verði að verja sem best lykilstofnanir, almenning, sameiginleg gildi og hugsjónir. Þarna er ég að vitna í grein frá því í desember 2020 og ég sé núna að þetta er óvenjuvel orðað í greininni um akkúrat þessa þætti sem við erum að ræða hér; að það þarf hver þjóð að leggja sitt af mörkum svo unnt verði að verja sem best lykilstofnanir, almenning, sameiginleg gildi og hugsjónir.
Svo rétt í lokin bendi ég á, fyrst hv. þingmaður er einmitt í utanríkismálanefnd, að það er gott mál í nefndinni, rannsóknasetur um öryggis- og varnarmál, þar sem komið er nákvæmlega inn á það að efla þekkingu (Forseti hringir.) um þessi mál og síðan er tengt við þjóðaröryggisstefnu þjóðarinnar.