156. löggjafarþing — 33. fundur,  30. apr. 2025.

varnarmálalög.

280. mál
[20:13]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Bara svo ég haldi rétt áfram þar sem við enduðum þá eru komnar fínar umsagnir um málið til utanríkismálanefndar, frá háskólasamfélaginu m.a. Miðað við hvernig málið hefur þróast — þetta er í annað eða þriðja skiptið sem sá sem hér stendur leggur málið fram, það er ekki nema eitt og hálft ár held ég síðan ég lagði það fyrst fram svo ætli þetta sé ekki annað skiptið. Það hefur meira að segja þróast svolítið í umsögnunum hvernig menn líta á málið, í athugasemdum og umsögnum. Það er svolítið skýr sýn held ég frá flestum sem skrifa umsagnir, þessi sameiginlegi grundvöllur á bak við hvernig sé hægt að vinna með þetta. Norðurslóðanetið er með umsögn, Alþjóðamálastofnun og einhverjir fleiri aðilar sem tala svolítið um samþættingu milli vísindasamfélagsins og líka, eins og bent er á í málinu, mikilvægi þess í stjórnsýslunni að efla þekkingu þar í tengslum við það verkefni. Það kemur einmitt inn á þjóðaröryggisstefnuna, enda er þetta einn af punktunum þar, að mig minnir er það sjötti punkturinn þar sem minnst er á að auka þekkingu, og síðan inn á þetta mál sem við erum að fást við hér. Það eru bein tengsl sem er hægt að vinna með.

Þessi mál sem við erum að ræða núna, netöryggismálin, fjölþáttaógnir og öll þessi kerfi okkar í nútímasamfélagi, eru ekki að fara frá okkur. Þetta eru ekki háar upphæðir sem væri hægt að sjá fyrir sér varðandi rannsóknasetrið, þetta eru einhverjir tugir milljóna, 30, 40 milljónir eða hvað það er. En ég held að því fjármagni sé vel varið í að reyna að efla þekkingu og samþætta og fækka sílóum í samfélaginu sem snúa að þessari umræðu og þekkingu.