varnarmálalög.
Herra forseti. Ég sé þetta með sömu augum og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson. Ég held að skattfé almennings sé mjög vel varið í að fjárfesta í fólki til að öðlast færni og þekkingu á heimsmælikvarða til að verjast þessum ógnum, hvort sem það eru fjölþáttaógnir eða verkefni sem lúta beint að þeirri stofnun sem við ræðum um í dag. Þetta er bara byrjunin, þannig lít ég á, og ég held að við ættum öll að vera meðvituð um það án þess að ég fari að búa til einhverja framtíðarmúsík hérna í pontu eða lofa einhverju fyrir hönd þessarar ríkisstjórnar. Ég held að við verðum að horfast í augu við það að við erum farin að nálgast hvert annað meira í alþjóðamálum, öryggismálum og utanríkismálum heldur en við gerðum kannski fyrir bara fimm, sex, sjö árum síðan. Það er mín tilfinning. Ég hef ekkert fyrir mér í því annað en að hafa lesið umsagnir og þau gögn sem eru að berast okkur frá helstu sérfræðingum landsins í tengslum við myndun og mótun nýrrar varnarmálastefnu fyrir landið. Ég lít svo á að það sé bara gott en við skulum ekki hrósa happi of snemma vegna þess að ég fæ líka tölvupósta frá fólki sem er að tala fyrir hlutum sem ég hefði ekki trúað því að væru að grassera í íslensku samfélagi og boða kannski ekki mjög fallega heimsmynd. Ég þakka fyrir það að fólk treysti mér fyrir skoðunum sínum en ég er ekki á því að við séum öll — það er mikill meiri hluti fyrir frjálsu og upplýstu lýðræðissamfélagi hérna en við verðum hins vegar líka að átta okkur á því að við erum í þeirri algjöru forréttindastöðu að búa í lýðræðissamfélagi og mannréttindasamfélagi. Flestir á þessari jarðarkringlu gera það ekki og við eigum alltaf að standa vörð um það og ekki taka því sem gefnum hlut. Lykillinn að lýðræðinu er menntun, fjárfesting í menntun. Það er ekkert sjálfsagt við það að við séum að halda úti menntastofnunum, eða það er náttúrlega sjálfsagt að við skulum halda úti menntastofnunum sem við erum stolt af en þær lifa ekki á loftinu og ef við ætlum að fá hingað hæft starfsfólk á heimsmælikvarða þá mun það kosta (Forseti hringir.) og við skulum ekki vanmeta það. En ég fagna þessum áherslum.