varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna og fyrir það framtak að leggja fram þetta frumvarp og sömuleiðis hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu sem hefur verið ótrúlega góð og gagnlegt að hlusta á. Af því að ég var nú bæði aðstoðarmaður utanríkisráðherra þegar Sjálfstæðisflokkurinn var með þann málaflokk í fyrsta skipti í langan tíma og sat síðan í hv. utanríkismálanefnd á síðasta kjörtímabili þá er ótrúlegt að hugsa til þess eins og aðstæður eru í heiminum í dag að þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók við utanríkisráðuneytinu fyrir bara örfáum árum síðan var það fyrsta hlutverk nýs ráðherra að endurreisa varnarmálaskrifstofu, sem var þá ekki til, og standa fyrir því að það yrði komið upp sérstöku öryggisherbergi í utanríkisráðuneytinu, sem var ekki til staðar, til að eiga þar örugg samskipti. Við lítum svo á að netárásir séu auðvitað ein tegund fjölþáttaógna og það var ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem kom á fót deild fjölþáttaógna og stóð fyrir því að við gerðumst aðilar að öndvegissetrinu um fjölþáttaógnir í Helsinki og netöryggissetri NATO í Tallinn, sem hv. utanríkismálanefnd þekkir vel frá síðasta kjörtímabili eftir að hafa ferðast til þessara borga og landa til að heimsækja þessi setur.
Það var líka ánægjulegt að heyra hæstv. ráðherra lýsa því hversu mikil eftirspurn er eftir sérþekkingu Íslendinga á þessum málum því að við lögðum á það mikla áherslu í utanríkisráðuneytinu að við sendum út sérfræðinga til að taka þátt í alþjóðasamvinnu í netöryggismálum. Það er virkilega jákvætt að hæstv. ráðherra skuli halda áfram á þessari vegferð sem við í Sjálfstæðisflokknum hófum, að styrkja öryggis- og varnarmál, m.a. netöryggismál, og á hæstv. ráðherra hrós skilið fyrir það.
En að sjálfu frumvarpinu sem snýr að starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS og því að hún flytjist til utanríkisráðuneytisins. Það er vel hægt að taka undir það sem fram kemur í greinargerð um að við þurfum að horfa heildstætt á öryggis- og varnarmálin og að fjarskipti og netöryggismál séu þar undir. Það er auðvitað grunnskylda stjórnvalda að tryggja öryggi borgaranna. Sömuleiðis tek ég undir skýr skilaboð hæstv. ráðherra um að Ísland sé ábyrgur og hæfur aðili að Atlantshafsbandalaginu og styrki það eftir fremstu getu, m.a. með tilliti til netvarna. Við erum jú aldrei sterkari en veikasti hlekkurinn. CERT-IS gegnir sannarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að netöryggi, m.a. varðandi netárásir sem við höfum ekki farið varhluta af hér á landi, hvað þá eftir allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu. Það verður síðan gott að fá málið til meðferðar í hv. utanríkismálanefnd og ég hlakka til að fylgja málinu eftir þar.