varnarmálalög.
Virðulegi forseti. Það er virkilega gaman að taka hér til máls fyrir fullum sal af fólki eins og sagt er. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna og líka þessa umræðu sem hefur farið hérna fram. Með frumvarpinu er netöryggissveitin CERT-IS, með leyfi forseta, „computer emergency response team“, færð undir utanríkisráðuneytið. Netöryggissveitin gegnir einnig hlutverki CSIRT-teymis eða „computer security incident response team“. Markmið frumvarpsins er að styrkja utanríkisráðuneytið á sviði netöryggismála sem hluta af öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar. Að mínu mati er hér um að ræða mikilvægt og jafnframt áhugavert mál. Netöryggi í sinni víðustu mynd er grundvallarmál hér á landi, hvort tveggja vegna þess hvernig gæta þarf að öryggi almennings í hans daglega vafstri og einnig varðandi það hvernig við komum varnarmálum okkar fyrir og er þá vísað til fjölþáttaógna sem kunna að beinast að Íslandi.
Forseti. Það hefur aukist á síðustu misserum að almenningur hér á landi hafi orðið fyrir netsvikum og einkennaþjófnaði. Europol gaf nýverið út skýrslu um skipulagða brotastarfsemi í Evrópu sem ber heitið SOCTA 2025, en skýrslan veitir innsýn í þróun skipulagðrar brotastarfsemi í Evrópu. Europol segir í niðurstöðum sínum að lýsa megi skipulagi alvarlegra og skipulagðra brota í Evrópu þannig að það búi yfir ákveðnu erfðaefni eða DNA og erfðaefnið sé að breytast í ljósi margþættra og hraðra umbreytinga í heiminum nú um stundir. Það eru erfðaupplýsingar sem ákvarða eiginleika og starfsemi lífvera og þannig lýsir Europol erfðaefni skipulagðrar brotastarfsemi, þ.e. með undirliggjandi verkfærum, aðferðum við afbrot og uppbyggingu brotahópa. Telur stofnunin að nú megi sjá grundvallarbreytingu á þeim grunni sem afbrot byggjast á. Europol lýsir hinum breytta grunni glæpa með þremur samþættum og kraftmiklum þáttum sem auka ógnina af glæpastarfsemi á mismunandi hátt. Afbrot raska smátt og smátt öryggisvitund samfélagsins, sýnileiki þeirra á netinu eykst og aukning brota á netinu styðst við gervigreind og aðra nýja tækni.
Í skýrslunni er fjallað um netbrot sem eina af helstu ógnum sem Evrópa stendur frammi fyrir. Netbrot eru sífellt að verða flóknari og alþjóðlegri þar sem glæpamenn nýta sér veikleika í löggjöf, tæknilegum innviðum og stafrænum kerfum til að fremja glæpi á netinu. Skýrslan leggur áherslu á mikilvægi þess að styrkja netöryggi og samvinnu milli ríkja í Evrópu til að takast á við þessar áskoranir. Hún veitir einnig stefnumótandi innsýn sem hjálpar til við að móta stefnu og aðgerðir lögreglu og stjórnvalda í Evrópu. Skýrslan, SOCTA 2025, greinir mismunandi tegundir netbrota sem alvarlegar ógnir við öryggi Evrópu. Skýrslan lýsir m.a. spilliforritum, þegar glæpamenn nota slík forrit til að læsa kerfum og krefjast lausnargjalds fyrir aðgang, vefveiðum eða „phishing“, sem eru sviksamlegar aðferðir til að fá persónulegar upplýsingar, oft í gegnum falsaðar vefsíður eða tölvupóst, hakkaraárásum, sem eru árásir á netkerfi til að stela gögnum eða valda skemmdum, netglæpum tengdum fjármálum, svindli og fjársvikum á stafrænum vettvangi og síðast en ekki síst barnaníði á netinu — eða þ.e. síðast en ekki síst í þessari upptalningu. Það er dreifing ólöglegs efnis um misnotkun barna á netinu. Skýrslan leggur áherslu á að brotamenn nýta sér veikleika í stafrænum innviðum og alþjóðlegum kerfum til að fremja glæpi.
Virðulegi forseti. Það er afar mikilvægt að rammi um netbrot verði sniðinn þannig að hann nái vel utan um þann vanda sem okkur birtist á netinu. Þetta frumvarp sem nú hefur verið mælt fyrir er hluti af þeirri rammasmíð. Netöryggissveitinni er ætlað að fyrirbyggja og draga úr hættu á netárásum og öðrum öryggisatvikum í netumdæmi Íslands eins og kostur er og sporna við og lágmarka tjón á fjarskiptamarkaði og mikilvægum innviðum. Auk þessa hlutverks netöryggissveitarinnar er nauðsynlegt að styrkja getu lögreglu á þessu sviði. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur á að skipa starfsfólki sem hefur þekkingu á tölvu- og netbrotum og ég hygg að það sé viðeigandi að nota þann grunn til að byggja ofan á. Ég tel að hvergi annars staðar innan kerfis hér á landi sé að finna sambærilega þekkingu til að byggja á ef við tökum frá umrædda sveit, CERT-IS. Með frumvarpinu er starfsemi netöryggissveitar CERT-IS flutt frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála fest í sessi sem lögbundin verkefni á sviði varnarmála sem heyra undir utanríkisráðuneytið.
Virðulegi forseti. Í frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á varnarmálalöggjöfinni sem og lögum um Fjarskiptastofu, lögum um fjarskipti og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til að tryggja lagagrundvöll fyrir flutning á starfsemi CERT-IS frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins. Með breytingunni verður fjarlægð milli eftirlitsstjórnvalds, þ.e. Fjarskiptastofu, og netöryggissveitarinnar lögfest með það að markmiði að stuðla enn frekar að nauðsynlegu upplýsingaflæði um netöryggisatvik til netöryggissveitarinnar. Lagabreytingarnar fela ekki í sér breytingar á núverandi verkefnum netöryggissveitarinnar samkvæmt lögum. Hlutverk sveitarinnar er þannig hvort tveggja borgaralegt og á sviði öryggis- og varnarmála.
Forseti. Ég vil að lokum nefna að það geta verið tengsl á milli skipulagðra brotahópa, hryðjuverkahópa og herja, þannig að það er mikilvægt að við horfum jöfnum höndum til afbrota sem beinast að einstaklingum á netinu og þeirra ógna sem beinast að samfélögum sem slíkum. Einn hópur getur þannig tekið að sér verkefni fyrir annan og er stundum vísað til þess sem glæpa sem þjónustu eða „crime as a service“. Markmið árása geta verið margvísleg, svo sem ólögleg upplýsingaöflun, skemmdarverk og jafnvel að halda viðbragðsaðilum uppteknum. Það var nefnt hér áðan í ræðu undir þessum lið að það væri hægt stöðva umferð á strengjum til landsins öðruvísi en að klippa á þá og það er t.d. hægt að gera með því að beina mjög mikilli umferð um þessa strengi.
Að lokum ætla ég bara að fagna þessu frumvarpi og vona að því verði vel tekið í hv. utanríkismálanefnd.