varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að Alma D. Möller og Ragna Sigurðardóttir muni verða fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokks um að Þórarinn Ingi Pétursson muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokks um að Guðrún Hafsteinsdóttir verði fjarverandi næstu daga. Að lokum hefur borist bréf frá Loga Einarssyni um að hann verði fjarverandi á næstunni.
Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi, Árni Rúnar Þorvaldsson, 1. varamaður á lista Samfylkingar í Reykjavíkurkjördæmi suður, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, 1. varamaður á lista Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi, Jónína Brynjólfsdóttir, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, og 2. varamaður á lista Samfylkingar í Norðausturkjördæmi, Sindri S. Kristjánsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Árni Rúnar Þorvaldsson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.