Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 352, 354 og 356, um stoðþjónustu, frá Diljá Mist Einarsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 223, um kostnað við gerð og þróun upplýsingatæknilausna, frá Ingvari Þóroddssyni. Þá hafa borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 385 og 387, um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði frá Snorra Mássyni.