skipan í stjórnir.
Frú forseti. Í liðinni viku spurði hv. þm. Sigríður Á. Andersen hæstv. félagsmálaráðherra út í stjórnskipan þess ráðherra og stjórnarfar. Þar var nefnd, sem reyndar hefur nokkuð verið rakið í fjölmiðlum, skipan stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og eins nefndur skortur á skipan stjórnar almannatrygginga. Hvort tveggja hefur vakið nokkra gagnrýni, m.a. frá Jafnréttisstofu sem bendir á að ekki sé farið að lögum varðandi skipan stjórnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar enda séu þar ekki nógu margar konur. Eins hefur Verkfræðingafélag Íslands gagnrýnt að ekki hafi nógu hæft fólk verið skipað í stjórnina. Menn geta haft ólíka skoðun á þessari gagnrýni og á jafnréttislögunum, til að mynda að fyrirtækjum, einkafyrirtækjum, sé ætlað að lúta því að ríkið hafi afskipti af því hverja menn velja fyrir sig í stjórn. Eins má hafa ólíkar skoðanir á mati Verkfræðingafélagsins. En það vakti hins vegar athygli með hvaða hætti hæstv. félagsmálaráðherra svaraði spurningunum. Svörin voru nokkurn veginn á þá leið að þegar Flokkur fólksins ætti í hlut þá þyrfti ekki að fylgja lögum og reglum. Hvað hæfi varðaði þá væru allir hæfastir af því að þeir væru frá Flokki fólksins, innstu koppar í búri þar, og ynnu að pólitískum markmiðum. Sama átti við um jafnréttislögin. Það væri einfaldlega verið að skipa það fólk sem væri hæfast í þeirri merkingu að það væri frá Flokki fólksins.
Er þetta ásættanlegt að mati hæstv. forsætisráðherra? Þarf ráðherra í ríkisstjórn forsætisráðherrans ekki að fylgja lögum ef hann er bara í pólitík? Eru jafnréttislögin ekki í gildi fyrir alla? Mun hæstv. forsætisráðherra á einhvern hátt hlutast til um það að ráðin verði bót á þessu eða er þetta einfaldlega gert með samþykki hæstv. ráðherra?