156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

skipan í stjórnir.

[15:07]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Nú er það þannig að fyrirkomulagið á þessari stjórn HMS, að skipa fjóra af fimm með þessum hætti, að ráðherra ráði því, er ekki komið frá þessari ríkisstjórn þannig að það að hún velji þá aðila sem þarna ráðast inn, þessa fjóra af fimm, er ekki athugavert. Ef þetta snýr eingöngu að kyni — ef ég skil fyrirspurnina rétt — þeirra sem voru skipaðir, vegna þess að hér eru skiptar skoðanir um hvernig eigi að meta hæfi eða hvort viðkomandi hafi verið hæfur eða ekki, þá veit ég ekki betur en að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hafi sjálf svarað því til og vitnað til þess að samkvæmt lögum um þessa jöfnu stöðu og jafnan rétt kynjanna — sem ég er vissulega á þeirri skoðun að eigi með hvað mestum hætti að reyna að leitast við að uppfylla — sé heimilt að víkja frá þeirri meginreglu að tilnefna bæði karl og konu ef einhverjar ástæður eru taldar vera fyrir því, til að mynda hæfi stjórnarmanna. Nú var ég ekki sú manneskja sem tók ákvörðun um þetta. Ég átti ekki samtöl við hæstv. ráðherra um nákvæmlega hvað lá þarna að baki en ég treysti henni til að meta það að um sé að ræða einstaklinga sem hún vill meina að séu hæfir til að gegna þessu og séu ástæða þess að þetta hafi farið með þessum hætti, þannig að ég sé ekki betur en, miðað við þær upplýsingar sem ég hef, nema hv. þingmaður þekki eitthvað betur til þessa máls en ég, að hér hafi lögum verið fylgt og ég hef a.m.k. ekki heyrt þau orð falla ef þau féllu hér að Flokkur fólksins þyrfti ekki að fylgja lögum frekar en aðrir.