skipan í stjórnir.
Forseti. Þessi sama spurning kom hér til umræðu í síðustu viku og ég hef svo sem engu við svar hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra að bæta. Það liggur alveg fyrir að öll lögbundin verkefni Tryggingastofnunar heyra undir ráðherrann og yfirstjórnarheimildir ráðherra eru skýrar. Það liggur líka fyrir að það stendur til, m.a. í nafni hagræðingar, m.a. í nafni þess að reyna að vera ekki með allt of margar nefndir, allt of mikið af stjórnum sem hafa kannski í sumum tilvikum takmarkað hlutverk — eins og í þessu tilviki þegar ljóst er að yfirstjórnarheimildir ráðherra eru skýrar þá er tekin ákvörðun um að fella niður þessa stjórn. Ákvæði um þetta eru í frumvarpi sem liggur núna fyrir þinginu, um almannatryggingar og launavísitölu. Hæstv. ráðherra metur sem svo að það sé ekki skynsamlegt að fara í það að skipa nýja stjórn undir þeim kringumstæðum sem nú eru uppi, að það stendur til að leggja umrædda stjórn niður.