viðmið við skipan í stjórnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa mikilvægu spurningu og athugasemd vegna þess að ég get tekið heils hugar undir með honum. Nei, þetta var ekki plan. Það er mín skoðun að það þurfi fjölbreytni í slíkar stjórnir. Það er líka mín skoðun að það skipti máli að sjónarmið ólíkra landshluta komi þarna inn. Ég hef verið alveg skýr á því og það lá alveg fyrir að þetta er í fyrsta skipti sem er farið í skipun stjórnar með þessum hætti út frá hæfni en ekki flokksskírteini og að þær stjórnir … (Gripið fram í.) — Nú vil ég bara vekja athygli á því að það hefur verið stigið gífurlega stórt skref hjá þessari ríkisstjórn að breyta þessu þegar kemur að ákveðnum tegundum stjórna. Það er ekki búið að gera þetta fyrir allar en ég stend ekki í vegi fyrir því og mun ekki standa í vegi fyrir því að slíkar breytingar verði gerðar á öðrum stjórnum. En eitt skref í einu og eftir þennan stutta tíma við völd er búið að gera umfangsmiklar breytingar á skipunum stjórna. Það breytir því ekki að allt svona ferli gæti þurft að endurskoða. Ég held t.d. að það hafi mögulega verið of þröngar skilgreiningar sem gerðu það að verkum að í einhverjum tilvikum hafi gífurlega hæft fólk, fólk með ólíkan bakgrunn, sem býr fyrir utan suðvesturhornið og þekkir kannski betur starfsemi sumra þessara fyrirtækja út frá ólíkum sjónarmiðum, ekki verið tekið inn í myndina. Ég hef komið þeim athugasemdum til skila frá mér til hæstv. fjármálaráðherra og hann hefur bara tekið vel í það. Við erum að færa okkur áfram í þessu ferli og þetta skiptir máli þannig að ég tek undir það að fjölbreytni er mikilvæg. En ég vil líka vekja athygli á því að við erum hægt og bítandi að fikra okkur áfram með breytingar á stjórnkerfinu. Róm var ekki byggð á einum degi. Þessar breytingar voru gerðar núna þegar kemur að stjórnum sem eru skipaðar af hæstv. fjármálaráðherra. Það er ekkert ólíklegt að það verði gerðar aðrar breytingar síðar meir en það breytir því ekki að hæfni verður ekki bara séð út frá því að fólk búi á einu svæði á landinu og það er mín skoðun.