veiðigjald.
Frú forseti. Við skulum að hluta til leyfa okkur að vera ósammála um suma hluti. Ég held að það hljóti að vera þannig að það eru að teiknast upp ólík viðhorf í þessum sal gagnvart ákveðinni sanngirni og gagnvart því að við fylgjum því sem sannarlega stendur í lögum um stjórn fiskveiða, að þetta sé sannarlega eign í eigu þjóðar.
Í öðru lagi var það líka þannig að tekin var ákvörðun á sínum tíma þegar gert var ráð fyrir að við myndum sækja þó þennan þriðjung, ekki allt, ekki tvo þriðju, ekki helming heldur þriðjung, að þetta umrædda veiðigjald yrði byggt á ákveðnum útreikningi. Um þetta hefur núna verið deilt. Það vill þannig til, sem lá ekki fyrir fyrir kosningar, kemur til umræðu í stjórnarmyndunarviðræðum og kemur síðan út úr ótrúlega vel útfærðum og umfangsmiklum greiningum, að hægt er að leita leiða til þess að ná betur utan um það sem veiðigjaldið á sannarlega að mæla sem er undirliggjandi aflaverðmæti. Þetta er ekki breyting á prósentum og fyrir mér, frú forseti, er það ekki kúvending. Það er ekki kúvending að mæla hlutina með réttari hætti en áður. Það er ekki kúvending að leiðrétta það sem löngum virðist reyndar hafa verið vitað, m.a. af þeim sem stunda sjómennsku sjálfir, hafa landað í erlendum höfnum og vita hvað er greitt fyrir fiskinn annars staðar, að hér er ekki verið að greiða rétt verð. Þetta breytir jú þeirri niðurstöðu sem við fáum út úr þessu. Endum við í tvöföldun? Nei, við endum reyndar ekki í tvöföldun vegna þess að hvað er gert? Jú, eftir umfangsmiklar greiningar, eftir umfangsmikið samtal og samráð var til að mynda ákveðið að áður en þetta frumvarp yrði lagt fram yrðu frítekjumörk hækkuð þannig að minnstu og millistóru útgerðirnar eru að eða munu borga minna en áður var búist við. Því sýnir allt í vinnubrögðum þessa máls að vel er að því staðið. En þarna getum við líka einfaldlega verið ósammála um að það er pólitík í þessum sal og mér finnst allt í lagi að það sé skýrt.