veiðigjald.
Frú forseti. Já, engin kúvending, bara útreikningar. Tilefni frumvarps um breytingu á lögum um veiðigjald er, eftir því sem segir í frumvarpinu sjálfu, áhersla í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar um að til standi að móta auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu og réttlát auðlindagjöld. Liggur þó ekki enn fyrir nein auðlindastefna né mælikvarðar á réttlæti auðlindagjalda. Forsendur eru lykilatriði eins og hæstv. forsætisráðherra veit mætavel. Segja má að ekki liggi allar forsendur á borðinu nú. Greiningar á áhrifum hækkunar veiðigjalds skorti lengi vel og þótt bætt hafi verið úr eru þær enn langt frá því að teljast ásættanlegar. Ekki liggja enn fyrir greiningar á afleiddum áhrifum á sjávarbyggðir, sveitarfélög og verðmætasköpun af ýmsum toga. Útreikningar, segir hæstv. ráðherra, en þar sem greiningarnar skortir er rétt að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún geti fullyrt með útreikningum sínum að kakan muni stækka en ekki einfaldlega minnka við þær breytingar sem frumvarpið boðar. Munu útreikningarnir (Forseti hringir.) sýna fram á að það komi fleiri en ekki færri krónur í ríkiskassann? Ef hæstv. forsætisráðherra treystir sér ekki til að fullyrða það, þykir henni það réttlætanlegt?