veiðigjald.
Frú forseti. Það er þetta með greiningar. Nú er það þannig að á síðasta þingári lagði þáverandi ríkisstjórn til að mynda fram breytingar á veiðigjaldafrumvarpinu þar sem átti að hækka hlutfallið sem var greitt af uppsjávartegundum upp í 45%. Það átti að afnema frádráttarbærni frá tekjuskatti. Það var ekki ein einasta greining í því frumvarpi. Það virðist skipta máli hvaðan greiningarnar koma. Ég hvet alla hér inni í þessum sal sem hafa ekki gert það til að lesa greinargerðina sem fylgir umræddu frumvarpi hjá hæstv. atvinnuvegaráðherra því að um umfangsmiklar greiningar er að ræða. Það liggur alveg fyrir.
Hvað varðar kökuna þá ætla ég líka að leyfa mér að vera ósammála því að um skattahækkun sé að ræða. Þetta eru auðlindarenta. Það liggur fyrir að það er hagfræðilega þekkt forsenda að þegar kemur að auðlindarentu þá hefur dreifing hennar ekki áhrif á hvernig fyrirtækin ákveða að skipta sínum framleiðsluþáttum vegna þess að þetta er hrein renta. Þetta hefur ekkert að gera með ákvörðunartöku þessara fyrirtækja. (Forseti hringir.) Þetta er peningur sem fyrst og fremst hefur runnið í vasa eigenda, runnið inn í fyrirtækjarekstur á suðvesturhorninu (Forseti hringir.) og því má alveg breyta mín vegna.