156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

strandveiðar og viðbótaraflaheimildir.

[15:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og bíð spenntur til vikuloka. Þetta hlýtur að koma í ljós hvað úr hverju. Í ljósi þeirra upplýsinga langar mig í seinni fyrirspurn minni að spyrja — veiðigjaldamálið verður rætt hér á eftir. En það er eitt sem — það er mjög margt raunar sem ég hef ekki náð utan um í því frumvarpi sem liggur fyrir. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún meti það sem svo að uppgjör hingað til, sem er grundvöllur veiðigjalds, hafi verið andstætt gildandi rétti, því að það er talað um leiðréttingu og leiðrétting er yfirleitt — Árnastofnun leiðir út þá skilgreiningu á því orði að það sé verið að leiðrétta, laga ágalla. Það sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um er hvort ráðherra meti það sem svo að útreikningar sem grundvalla verðmætamatið hafi verið andstæðir gildandi rétti.