156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

strandveiðar og viðbótaraflaheimildir.

[15:31]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka aftur fyrirspurnina sem er áhugaverð. Ég hef ekki forsendur til þess hér og nú, allra síst á þeirri mínútu sem ég hef til umráða, að fullyrða það en ég ætla að leyfa mér að halda því fram að þessi leið með milliverðlagninguna, sem ekki endurspeglar raunverulegt aflaverðmæti, hafi ekki verið það sem margir alla vega töldu að væri grunnur að því veiðigjaldafrumvarpi sem lagt var fram á sínum tíma. Hvort það hafi verið andstætt gildandi rétti þá ætla ég ekki að ganga svo langt að segja það, hef ekki forsendur til þess. En þegar við tölum um leiðréttingu þá liggur fyrir að menn hafa alla tíð talið að þetta ætti að vera til að tryggja að þjóðin fengi einn þriðja af raunverulegri auðlindarentu og þá næðist það ekki í gegn nema það væri tryggt að miðað væri við raunverulegt aflaverðmæti en ekki það verðmæti sem myndast í innri viðskiptum ákveðinna útgerða.